24.08.1912
Efri deild: 35. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (332)
69. mál, prestssetrið Presthólar
Jens Pálsson:
Eg hef með athygli hlýtt á hinar ítarlegu umræður um mál þetta bæði við hina fyrri umr. og nú við þessa umr. málsins. Saga þess hefur verið sögð, og atriði hennar nákvæmlega og ljóslega rakin, — og þykir mjer á málinu rætast það, að „margt sje skrítið í harmoníu“.
Það er vitanlegt, að hið nýja Skinnastaðaprestakall, sem Presthólasókn með Presthólum nú liggur í, er eitt hið víðlendasta, og um leið örðugasta prestakall á öllu landinu.
Gagnkunnir menn hafa sagt mjer, að jafnlöng muni leiðin gegn um prestakall þetta endilangt, sem leiðin hjeðan úr Reykjavík austur að Geysi, eða að minsta kosti austur að Brúará.
Presturinn, sem verið hefur á Presthólum og sótt hefur um og fengið veitingu fyrir hinu nýja Skinnastaðaprestakalli, hann situr enn sem fyr á Presthólum, og vill sem ábúandi þar fá þá keypta. Þetta leyfir hann sjer, þrátt fyrir það að með brauðasamsteypulögunum frá 1907 voru Skinnastaðir ákveðnir sem prestssetur í nýja samsteypuprestakallinu. Löggjafarvaldinu var það ljóst, að hjer var um allra gífurlegustu brauðasamsteypu á landinu að ræða, og að ekki gæti komið til mála, og með engu móti samrýmzt þörfum safnaðanna, að presturinn í nýja prestakallinu sæti á Presthólum; hann yrði að sjálfsögðu að búa á Skinnastað.
Hann er orðinn roskinn maður. Samt hefur hann nú á annað ár þótzt geta rækt þrestsembætti sitt fullvel fyrir söfnuðina, búsettur á Presthólum. Hann átti að flytja sig búferlum að Skinnastöðum. En á að hafa sótt um og fengið leyfi til að sitja árlangt á Presthólum, af því hann þurfti að ráðstafa sauðum sínum, ám og gemlingum. — Hvernig má það vera, að slíkt sje látið sitja í fyrirrúmi fyrir þörfum safnaðanna í þjóðkirkju lands vors. Hann var, að því er fullyrt er hjer á þingi, loforði bundinn við biskup, um að flytja sig síðastliðið vor að Skinnastöðum. Þetta loforð hefur hann ekki efnt. Það er ekki ofsagt, að það er „margt skrítið í þessari harmoníu“, og það er vægilegast sagt, margt óviðfeldið í þessu máli, og þess illa gætt, sem um fram alt ber að gæta.
Mikilvæg fyrir þetta mál og íhugunarverð þóttu mjer ummæli háttv. 2. kgk. þm. Og í sambandi við þau vil jeg segja, að þótt enn muni örðugt þykja, að leysa upp fáeinar hinar ómögulegustu brauðasamsteypur og fjölga þess vegna lítið eitt prestaköllum í landinu, af því að prestalaunasjóður enn á örðugt uppdráttar, þar sem prestakalla- og prestalaunabreytingin er honum enn til útgjalda einna að heita má, þá vænti jeg þess fastlega, að hinum ómögulegustu samsteypubrauðum fáeinum, — og þar með Skinnastaðaprestakalli, verði, er stundir líða og prestalaunasjóður eflist, skift upp aftur, og þá komi Presthólar aftur kirkjunni í góðar þarfir og fái að bera nafn með rentu sem prestssetur.
Af þessum og fleirum ástæðum tel jeg rjett, að láta hjer staðar numið með þetta. mál.