22.07.1912
Efri deild: 6. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í B-deild Alþingistíðinda. (364)

33. mál, skipun læknishéraða

Guðjón Guðlaugsson (flutnm.):

Jeg skal þegar játa það, að þetta frumv. fer ekki í sparnaðaráttina, eins og það nú liggur fyrir, þar sem það fer fram á fjölgun lækna. Það er að því leyti líkt ástatt um þetta frumv. og frumv., sem var á dagsskrá næst á undan því, að aðalástæðan til þess, eð það er fram komið, er ósk þeirra, er hjer eiga hlut að máli, sem sje Hrútfirðinga. 1897 höfðu þeir von um það eða öllu heldur vissu, að þeir fengju sjerstakan lækni. Samkvæmt þeim læknalögum, er þingið þá samþykti, var ætlazt til, að Blönduóshjerað næði vestur að Miðfjarðarhálsi, en þá tók við Hrútafjarðarhjerað, er náði austur að Miðfjarðarhálsi, og í voru, að vestan Óspakseyrar- og Bæjarhreppar í Strandasýslu, og þá kom Steingrímsfjarðarhjerað. Var í fyrstu ætlazt til, að læknirinn skyldi sitja á Borðeyri, en það varð að samkomlagi við þáverandi þingmenn Húnvetninga, að hann skyldi sitja í Hrútafirði að austanverðu. En það var samþ. með miklum meiri hluta í þinginu, að læknirinn í Hrútafjarðarhjeraði skyldi sitja í Hrútafirði. En sú var ástæðan til þess, að það var samþ., að hann sæti austanmegin við fjörðinn, að þá var eigi eins góður ferjukostur yfir fjörðinn eins og nú er. Þá voru Þóroddsstaðir ferjustaður, en nú er það sá bær, er Gilsstaðir heitir og er beint á móti Borðeyri, nýbýli, þar sem nýhýlingarnir hafa ferjurnar mest að atvinnu. En um læknalögin 1897 fór svo, eins og suma háttv. þingdm. rekur víst minni til, að þeim var synjað konungsstaðfestingar af þeirri áslæðu, að þar var ákvæði um eftirlaun lækna, er stjórnin gat ekki fallizt á. Málið var því enn fyrir þinginu 1899, og af því leiddi það, að breyting var gerð á þeirri hjeraðsskipun, er jeg sagði að samþykkt hefði verið á þinginu 1897. Þá var þessu breytt þannig, að Blönduósshjerað var minkað að vestan, náði nú ekki nema að Gljúfurá, en Hrútafjarðarhjerað var stækkað austur á bóginn, skýrt upp og kallað Miðfjarðarhjerað, og læknirinn fjekk aðsetur í Miðfirði. Hann situr á Hvammstanga. Þessi breyting komst á í neðri deild með eins atkvæðis mun og gekk svo fram í efri deild vegna tímaleysis, svo að ekki var hægt að breyta. Það var ekki furða, þó að Hrútfirðingar, er vóru í þessu læknishjeraði, yndu illa við þessi skifti. Þá er læknislögin voru hjer á alþingi 1907, var þessu ekki breytt. Jeg sat þá hjer í deildinni, og þau komu ekki upp hingað, fyr en það var orðið mjög áliðið þingtímans, svo að breytingu varð ekki komið á í þessu efni. Jeg held, að það sje enginn blettur á landinu. sem hafi orðið fyrir lakari útreið við læknalögin 1899 en Bæjarhreppur. Læknum var fjölgað mjög mikið, og varð það öllum meira og minna til hagræðis nema í Bæjarhreppi. Þar urðu afturför, því áður lág hann undir Dalahjerað, sem var í þó raunar skárra að sköminni til en að sækja lækni á Hvammstanga, Mjer virtist málið vera sótt og rekið af persónulegum hvötum frá hálfu Austur-Húnavatnss. Lækninum, sem þá bjó á Klömbrum, var ætlaður vesturhlutinn, og því voru hjeraðatakmörkin færð austur fyrir hann; en þeim varð ekki það að vilja, því hann flutti til Blönduóss og varð hjeraðslæknir í Blönduósshjeraði. Læknirinn fyrir vesturhjeraðið var svo settur niður á Hvammstanga, sem varð Hrútfirðingum til erfiðleika. Það er því eðlilegt, að þeir óski eftir lækni á Borðeyri. Það, sem hjer er farið fram á, er það, að nú sje að nokkru leyti það sporið stigið aftur, er alþingi 1897 stje. En nú hagar málinu nokkuð öðru vísi við, er læknir er nú kominn á Hvammstanga, hefur reist sjer þar hús og búið þar um sig. En annars tel jeg ekki ógerning, að hafa Blönduósshjerað eins og það var eftir lögunum, er alþingi samþ. 1897. Það hefur ekki orðið eins mikill hagur að breytingunni, sem alþingi 1899 gerði, og vænta hefði mátt. Læknirinn í Húnavatnshjeraði situr nú á Blönduósi, og ætti honum ekki að vera ókleyft, að gegna því hjeraði, þótt það væri stækkað vestur á bóginn að Miðfjarðarhálsi, en þá, að sjálfsögðu, ætti læknissetrið á Hvammstanga að færast á Borðeyri, og játa jeg, að það væri það allra heppilegasta, því þá þyrfti engum lækni að fjölga.

Jeg vonast til, að háttv. deild taki þessu frumv. með kurteisi og góðvild, sjerstaklega af því, að hún hlýtur að kannast við, að hjer er ekki krafizt anars en þess, sem er í samræmi við sanngirni og rjettlæti. Jeg þykist vita, að mörgum þingmönnum verði ekki um þann útgjaldaauka, er frumv. hefur í för með sjer fyrir landssjóð, ef það verður að lögum, ekki sízt þar sem fjárhagur vor er eins þröngur, eins og nú er raun á, og skil jeg slíkt vel.

Og að síðustu leyfi jeg mjer að leggja til, að frumv. sje athugað af 3 manna nefnd, að lokinni þessari umræðu.