27.07.1912
Efri deild: 10. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (387)
48. mál, árgjald af verslun
Jens Pálsson (flm.):
Jeg skal leyfa mjer, að svara háttv. þm. Strand. nokkrum orðum, og byrja þá á því, sem hann endaði á.
Hann áleit misrjettið koma fram við það, að lagt sje á báðar hliðar, bæði á aðflutta og útflutta vöru. En úr því tveir eru hjer á landi aðalatvinnuvegir; og sín stjettin — annarsvegar sveitabúar, hins vegar útvegsbúar og sjómenn — stundar hvorn, þá sjá allir, að jafnaðarfyllra og sanngjarnara er, að ætla báðum, en annari að bera útflutningsgjald.
Hann taldi það misrjetti, að þeir, sem lifðu af peningum sínum, slyppu fyrir þessu gjaldi sein framleiðslugjaldi. En hvernig standa svo þessir menn að vígi? Þeir hafa ekkert kjöt, enga ull eða smjör, en verða að kaupa þetta alt, og borga því tiltölulega miklu meira af því, sem hvílir á hinni útlendu vöru, og þannig jafnast upp gjaldbyrðin á þá.
Þm. talaði um, að það væri óráðlegt, að leggja á vöru, sem er framleidd í landinu og flutt út. Ekki hefur þó óráðlegt þótt, að leggja útflutningsgjald á sjávarafurðir. Það hefur verið gert á undanförnum árum, og vandlega athugað, að engin sjávarvara slyppi undan. Og sama kveður við enn, þar sem stjórnin nú fer fram á útflutningsgjald á síldarolíu o. fl. Og jeg verð að segja, að útflutningsgjaldið á sjávarvöru hefur gefizt vel, að öðru en jöfnuðinum, eða jafnvæginu meðal aðalatvinnustjetta landsins. Það hefur altaf hallazt á, því að alt útflutningsgjaldið. hefur verið látið öðru megin, á þá hliðina, sem að sjónum veit, á þá stjettina, sem sjóinn stundar, en ekkert á hina hliðina, sem til landsins veit, nje á þá stjettina, sem landbúnaðinn stundar.
Í öðru lagi er það víst, að við Íslendingar verzlum of mikið, við seljum þannig allan góðan saltfisk, en höfum svo eftir misjafnt tros eitt. Góðs saltfiskjar eða harðfiskjar neytum við varla framar, en lifum í þess stað á misjafnri kornvöru,og er það bæði dýrara og óhollara. Í þriðja lagi göngum við í fötum, sem unnin eru úr útlendum varningi, en notum ekki innlenda ull í fatnað handa okkur.
Ef það er ranglátt, sem háttv. þingm. Strand. sagði, að leggja útflutningsgjald á innlenda útflutningsvöru, þá skil jeg ekki, hvers vegna hinn háttv. þm. hefur ekki hafizt handa til þess að fá núverandi útflutningsgjald afnumið, því óneitanlega er það ranglátt eftir kenningum hans, og hann hefði því átt skilyrðislaust að berjast fyrir afnámi gjaldsins.
Hinn háttv. 3. kgk. taldi það óheppilegt, að frv. hefði ekki komið fram í Nd., þar sem annars öll skattamálin væru þar nú; í tilefni af því, vil jeg benda á, að sje það satt, sem heyrzt hefur, að í nefndinni þar sje ekkert orðið að samkomulagi, þá væri mjög heppilegt, að frumv. gæti gengið sem tafarminst, svo það gæti komizt sem fyrst til Nd. Með því vekur það líka meiri athygli hinnar háttv. nefndar og allrar háttv. Nd., og nefndin fær þá alvarlega brýningu til að athuga málið vel og rækilega í sambandi við önnur frv., er fyrir henni liggja, og til að leggja sem mestan tíma og vinnu í þessi mál.
Þar sem háttv. 2. þm. Árn. sagði, að frv. bæri með sjer, að landbúnaðinum væri íþyngt móts við sjávarútveginn, borið saman við hlutfallið eftir núverandi löggjöf, þá skal jeg játa, að svo er, því að frv. er ætlað að afmá það misrjetti milli sjávar- og landbænda, sem eftir núgildandi lögum ómótmælanlega á sjer stað um útflutningsgjald af framleiðslu. Samkvæmt frumv., bera þeir landbúnaður og sjávarútvegur tiltölulega jafnar byrðar. Þó lagt sje 1/2% hærra gjald á sumar landbúnaðarafurðir, þá er ekki hægt að segja, að það sje ofhátt gjald, fyr en sýnt er og sannað, hversu mikið af útlendum varningi sjávarmaðurinn þarf að kaupa, til þess að geta rekið sjávarútveginn, og fyr en hins vegar líka er sýnt reikningslega, hvað hver atvinnugreinin gefur af sjer “netto“. Að þessu hefur hinn háttv. þingm. ekki gætt, og þá veit hann að vonum eigi heldur hitt, að það er ætlun vor, að landbúnaðurinn fái undir lægra gjaldi, eða jafnvel án aðflutningsgjalds, nauðsynleg búnaðaráhöld, svo sem skilvindur, plóga og herfi; þetta gleymdist að taka fram í frumv., en verður bætt við 2. umræðu.