13.08.1912
Efri deild: 23. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 348 í B-deild Alþingistíðinda. (395)
48. mál, árgjald af verslun
Jens Pálsson, (framsm.):
Með því, eins og öllum er kunnugt, að frv. eitt efnisskylt þessu frv., en þó frábrugðið, var samþ, við 2. umr. í Nd. í gær, og mjer sem framsögumanni og flutningsm. þykir æskilegt að fá að vita, hver afdrif það fær áður en þetta mál fer til 2. umr., vil jeg skjóta því til forseta, að taka málið út af dagskrá.