10.08.1912
Efri deild: 21. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

71. mál, kolatollur

Sig. Eggerz:

Jeg get verið mjög stuttorður að þessu sinni, því í fyrri ræðu minni hafði jeg slegið varnagla gegn flestum þeim mótbárum, sem fram eru komnar gegn frumv. þessu. Háttv. 2. kgk. þm. talaði af miklum móði um hættu þá, sem af kolatolli þessum leiddi fyrir botnvörpuútveginn, og þá sjerstaklega hvað snerti útlendinga. Þeir mundu annaðhvort neyddir til að hætta útvegnum, eða þá fá sjer dísilmótora. En jeg verð að segja, að mjer þykir það harla ólíklegt, að nokkrum kæmi til hugar að yfirgefa þessi auðugu fiskimið af þessari ástæðu og leita t. d. til Færeyja, því það er sýnilegt, að kostnaðurinn við að leita til Færeyja eftir kolum mundi verða margfalt meiri, en tapauki sá, sem hjer er farið fram á, eða þeir færu að taka upp dísilmótora. Það gera útlendingar og allir auðvitað strax, og það verður talið ódýrara eða hentugra, en að þessi tollauki geti orðið til þeirra breytinga, það held jeg allir sjái, að nái ekki nokkurri átt. Því jafnvel þó hver botnvörpungur ætti að greiða 3.000 kr. í toll, hvað mundi slíkt hrökkva fyrir nýrri og dýrari skipum. En nú athugaði háttv. 2. kgk. þm. ekki, að botnvörpung. sleppa við að greiða sjálfsagt toll af hálfri kolabrúkuninni, því ekki er ætlazt til, að þeir greiði toll af þeim kolum, sem þeir taka í útlandinu og brúka á leiðinni hjer upp og á fiskiveiðum; aðeins af þeim kolum, sem þeir kaupa hjer. Og sá tollur mundi að líkindum als ekki verða meiri en 1.500 kr. á hvern botnvörpung.

Jeg verð að segja, að mjer þótti það dálítið broslegt, sem háttv. 4. kgk. þm. sagði, að með þessu frumv. væri verið að níðast á útlendingum. Jeg hjelt nú reyndar, að það mætti fremur segja um þá, sem ausa upp fiskinum í kring um strendur vorar, að þeir níddust á oss.

Sumir háttv. þm. hafa ekki viljað heyra það nefnt, að útlendingar greiði nokkurn hluta þessa kolatolls; en þá virðist mjer koma æði skrítið hljóð í strokkinn. Allir hljóta að kannast við það, að það var einmitt álitinn einn stærsti kosturinn við áfengistollinn, að útlendingar greiddu beinlínis eða óbeinlínis mikinn hluta hans. Hafi þetta verið kostur við áfengistollinn, og það held jeg allir hafi verið sammála um, því skyldi það þá ekki einnig vera kostur við þennan toll. Því það er einmitt höfuðkosturinn á tolli þessum, að helmingur hans er ekki tekinn úr vasa þjóðarinnar, en á sanngjarnan hátt frá útlendingum, og þessi kostur er svo mikill, að það er varla, í þeim vandræðum, sem nú eru á ferðinni, forsvaranlegt, að ganga fram hjá þessum tollstofni.

Því hefur verið haldið fram, að frumv. þetta kæmi hart niður á fátæklingunum; vitanlega koma öll aukin gjöld hlutfallslega þyngra niður á þeim, en hinum efnameiri. En það er ekki til neins, að vera að hafa hátt um það, að hjer sje verið að íþyngja þeim um of, en vera þó jafnframt á ferðinni með önnur frumv., sem leggjast langtum þyngra á fátæklingana, sjerstaklega við sjávarhliðina. Því hverjum getur blandazt hugur um, að almennur tollur á öllum aðfluttum vörum lendi harðast á þeim mönnum, sem alt verða að kaupa úr búðunum, og auk þess oft eiga framtíð sína undir dýrum lánsverzlunum. Og eins og fram hefur verið tekið, má búast við, að þessir almennu tollar lentu harðast á nauðsynjavörunum, því kaupmennirnir eiga örðugt með, að greiða mikla tolla fyrir fram, og leggja þá því vitanlega á þær vörurnar, sem greiðast er að selja, og sem þeir eru vissir um að liggja ekki með. En þetta eru sumar vörurnar, sem fátæklingarnir geta ekki verið án. Háttv. þm. Ísfjk. fáraðist mikið um, að jeg hefði talað um allavega „princíp“, og fjekk hreinasta mælskukast. Sagði, að druknandi maður væri ekki að hugsa um nein „princíp“, en klóraði „princíp“laust í bakkann. En það er mjög óheppilegt, ef æði druknandi manns kemur á löggjafana, þegar þeir eiga að ráða fram úr vandamálum þjóðarinnar. Bezta lausnin næst með rólegri og kaldri yfirvegun. Og sú rólega yfirvegun segir manni, að halda sjer að þeim bakkanum, sem hægast er að komast upp á, en synda ekki að fjarlægasta bakkanum, og súpa svo mikla hvelju á leiðinni, að maður nái sjer aldrei, þó upp komist.

Jeg vil leyfa mjer að benda á, að nú eru aðeins eftir 14 dagar af þingtímanum, og jeg fæ ekki betur sjeð, en að tími sje til kominn, að reyna að leysa þennan Gordionshnút fjármálanna á viðunanlegan hátt, en með þessu frumv. hygg jeg hann sje viðunanlega leystur; en ef nýju leiðirnar eru farnar, það tel jeg sama og að höggva á hnútinn.