10.08.1912
Efri deild: 21. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í B-deild Alþingistíðinda. (411)
71. mál, kolatollur
Einar Jónsson:
Af því að jeg er einn flutningsmanna að þessu frumv., vil jeg leyfa mjer að segja fáein orð um það, enda þótt búið sje að taka flest það fram, er með því mælir, og ætla jeg ekki að endurtaka það.
Okkur var það ljóst eins og öðrum, að nauðsyn bæri til að aukatekjur landssjóðsins á einhvern hátt. Frumv. í þá átt eru að vísu á ferðinni í báðum deildum þingsins, en okkur þykir þeim seinka úr nefndunum, og þingtíminn, sem eftir er, styttast til nýrra úrræða. Auk þess þykjumst við vita með vissu, að þingmenn sjeu mjög ósammála um frumv. þau, er fyrir liggja, og gæti þá svo farið, að ekkert þeirra næði fram að ganga og allar tilraunir þingsins til að afla landssjóði tekna færu þannig í mola. Við tókum því það ráð, að koma með þetta frumv. til vara, ef menn skyldu vilja grípa til þess, ef annað þryti. Jeg álít það að vísu neyðarúrræði og hefði helzt viljað draga að koma fram með það, þangað til hin aðalfrumvörpin væru komin til umræðu og sjá mætti eitthvað, hvernig þeim mundi reiða af. En tíminn leyfir það ekki, eins og háttv. forseti hefur þegar bent á. Þess vegna er það nú komið fram. Hin frumv., sem aðallega er nú talað um í þinginu, eru líka neyðarúrræði, og er þá um það að velja, hvað skást sje, en þá er öllu hætt.
Það frumv., sem hjer er fram komið í þessari háttv. deild um árgjald af verzlun, er svo gallað í mínum augum, að jeg býst ekki við að geta fylgt því, aðallega vegna þess, að það leggur toll bæði á aðfluttar og útfluttar vörur, og fleiri munu vera sama sinnis hjer í deildinni.
Það hefur verið talað um ýmsar skaðlegar afleiðingar af þessu frumv., en jeg hygg, að ofmikið sje úr þeim gert. Jeg veit vel, að það gjald, sem það ræðir um, kemur ójafnt niður á landsmenn, þar sem það kemur aðeins á nokkurn hluta þeirra, að því leyti, sem það ekki lendir á útlendingum, og það er auðvitað verulegur galli; en því er ekki heldur ætlað að standa nema 2—3 ár, og ætti því ekki að verða mjög tilfinnanlegt.
Jeg skal játa, að mjer þykir gjaldið, 2 kr. af tonni, heldur hátt, og er fús til, að lækka það, jafnvel alt að því um helming. Það veitir þá að vísu minni tekjur, en þó svo miklar, að verulegur munur er að, og betra að hafa þann tekjuauka en ekkert, ef um annað yrði ekki að gera, þá er þingi lýkur. Viðvíkjandi því, er hæstv. ráðherra mintist á, að vel gæti verið, að útlendingar gerðu mótspyrnu gegn frumv., þá væri það að vísu ekkert óeðlilegt, eftir það, sem á undan er gengið um einkasölu á kolum, enda þótt hjer sje öðru máli að gegna, þar sem gjaldið er jafnt á innlendum sem útlendum vörum. En jeg vona, að það nægi, að benda þeim á það og svo á hitt, að lögunum er eigi ætlað að gilda nema 2—3 ár, og skil ekki, að það geti svo valdið miklum vandræðum.