13.08.1912
Efri deild: 23. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í B-deild Alþingistíðinda. (435)

115. mál, styrktarsjóður barnakennara

Steingrímur Jónsson:

Með frumv. þessu er gert ráð fyrir, að föst ákveðin útgjöld vorði lögð á landssjóð; og er þa5 eflaust gert í góðum tilgangi. En þar sem þetta frumv. er eina frv. af öllum þeim frv., sem komið hafa fram í deildinni, sem fer fram á þetta, þá álít jeg rjettast, að skipuð verði nefnd í málið, og sting upp á 3 manna nefnd, að lokinni 1. umr.