25.07.1912
Efri deild: 8. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í B-deild Alþingistíðinda. (446)

40. mál, jarðskjálftaskemdir

Þórarinn Jónsson:

Jeg skal eigi hefja neinar umræður um þetta mál, þar sem ætla má, að sjálfsagt væri að sinna því, ef unt væri.

En jeg vil beina þeirri spurningu til flm., hvort nokkrir peningar sjeu til, og hvort lánsheimildum síðustu fjárlaga sje svo fullnægt, að þetta geti komið til greina.

Með það fyrir augum, að nýjir jarðskjálftar kynnu að geta komið, finst mjer líka, að komið geti til mála, að landsstjórnin hlutaðist til með byggingunum á þessum svæðum, svo að trygging yrði fengin fyrir því, að peningunum væri vel varið. Með þessum orðum vildi jeg leita fyrir í mjer um það, hvernig undir þetta væri tekið, og hvernig því yrði svarað af flutningsmanni.