25.07.1912
Efri deild: 8. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í B-deild Alþingistíðinda. (448)

40. mál, jarðskjálftaskemdir

Steingrímur Jónsson:

Jeg geri ráð fyrir, að landsstjórnin hafi athugað það, er hún svaraði lánbeiðni Rangæinga, að hægt væri að veita þetta lán; að lánsheimildir þær, er hún hefur, væru þannig, að hún gæli veitt lánið, og þyrfti ekki á nýrri lánsheimild að halda í því skyni. Jeg skil þessa tillögu svo, sem þar sje skorað á landsstjórnina, að láta þetta lán ganga fyrir öllum öðrum lánum, er henni er gefin heimild til að veita á fjárhagstímabilinu 1912—1913. Sum af þessum lánum hafa víst þegar verið veitt, sum ekki. Með þessum lánsheimildum er ekki sagt við stjórnina: „Þú skalt greiða út alla þá upphæð, sem hjer er tiltekin“, heldur að eins, að hún megi það, hafi leyfi til þess.

Annars er mjög áríðandi, að því lánsfje, er hjer ræðir um, verði varið sem haganlegast. Jeg vil, að það sje tekið fram hjer í þinginu, að það sje ætlazt til þess, að endurbyggingu hinna hrundnu bæja verði hagað þannig, að þeim sje sem minst hætt við hruni, þó að landskjálftar gangi. En jeg hygg, að í þessu efni sje nokkur trygging í því ákvæðisýslunefndar, að fjenu skuli að eins varið til að kaupa húsagerðarefni, sem sje timbur, járn og sement.

Jeg get af þessum ástæðum greitt atkvæði með þingsályktunartillögunni.