19.08.1912
Efri deild: 28. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (469)

89. mál, styrkur til búnaðarfélaga

Jón Jónatansson:

Jeg get að vísu tekið undir með háttv. þm. Ísfjk. um margt af því, er hann tók fram um þetta mál. En jeg lít svo á, að hann hafi ekki ofmælt það, að örðugra sje um alt það, er að jarðbótum lýtur á Vesturlandi, en víðast hvar annarsstaðar. En þótt jeg geti viðurkent þetta. þá get jeg samt ekki verið með því, að fara þessa leið, sem þingsályktunartillagan fer fram á. Þess ber líka að gæta, að víðar en á Vesturlandi er jörðin allgrýtt og jarðvegurinn seigur, og aðstaðan til jarðabóta því hvergi nærri góð. Það væri því ekki sanngjarnt, að gera þessa breytingu fyrir Vestfirði eina, auk þess eru t. d. tvær sveitir næst fyrir vestan Gilsfjörð, Geiradalur og Reykhólasveit, engu ver settar með tilliti til jarðabóta, en margar aðrar sveitir víða um land, en eftir þessari þingályktunartillögu ættu þessar sveitir einnig að njóta þessarar ívilnunar, sem þarna er á ferð.

Eins og kunnugt er, þá hafa menn hingað til fengið sama styrk fyrir unnar jarðabætur, hvar sem á landinu hefur verið. Og jeg er hræddur um, að þetta fyrirkomulagskerfi mundi ruglast — fara í mola, ef þessi leið yrði farin. Því vandhæfi er mikið á því, að koma þessu rjettilega fyrir, ef jafna á styrknum niður eftir mismunandi erfiði, aðstöðu manna til jarðabóta; sá mismunur kemur fram ekki að eins milli einstakra hjeraða, heldur milli einstakra jarða, og er því afar torvelt, að meta slíkt rjettilega.

Háttv. flm. sagði, að Vestfirðingar mistu styrks eða verðlauna úr Ræktunarsjóð Íslands sökum þess, að þeir vegna aðstöðu sinnar gætu ekki leyst af hendi eins mörg dagsverk og menn í öðrum hjeruðum. Mjer er ekki kunnugt um, hvort þetta er nákvæmlega rjett, en á hitt get jeg bent í sambandi við þetta, að á síðasta búnaðarþingi kom það til umræðu, að ekki skyldi beint miða verðlaun úr Ræktunarsjóðnum við dagsverkatölu eina, heldur einnig taka til greina aðstöðu manna til jarðabóta, og ástæður yfir höfuð, og þessi breyting þarf einmitt að komast á, og mundi þá að nokkru bætt úr .þessu misrjetti, sem þm. Ísfjk. kvartaði um.

Jeg get þá af því, sem jeg hef fram tekið, ekki greitt atkvæði með þessari till., sökum þess að mjer finst með henni stefnt inn á óheppilega leið.

Svo skal jeg ekki fjölyrða meira um málið.