19.08.1912
Efri deild: 28. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (470)
89. mál, styrkur til búnaðarfélaga
Björn Þorláksson:
Jeg vil taka það fram strax, að jeg mun ekki greiða þessari þingsályktunartillögu atkvæði, þótt jeg hins vegar verði að játa það, að það muni vera erfið og kostnaðarsöm vinna, að vinna að jarðabótum á Vestfjörðum, og það mun vera dýrara þar en á landinu í heild sinni, en það mun þó ekki vera kostnaðarsamara en í ýmsum öðrum hjeruðum, og ekki mikill munur á Vestfjörðum og Austfjörðum. þar sem jeg er kunnugur í þessu efni, og jeg hygg, hið sama sje um Norður-Þingeyjarsýslu að segja.
Jeg hygg því varhugavert, að samþykkja slíka undanþágu fyrir alla Vestfirði, því til eru þar þær sveitir, sem ekki er örðugra að vinna að jarðabótum í en annarsstaðar á landinu, og benti háttv. 2. þm. Arn. á hið sama og nefndi til 2 sveitir, Reykhólasveit og Geiradalssveit, þar sem svo til hagaði. Jeg vil þó ekki beint fella þingsályktunina, heldur tel bezt, að vísa henni til Búnaðarfjelags Íslands til rannsókna; þar ætti að rannsaka, hvort það væri ekki rjett, að fleiri sveitir fengju undanþágu í þessu efni en Vestfirðir, og þá hverjar sveitir, ef undanþágan yrði veitt. Jeg vil því vísa málinu á bug með svofeldri rökstuddri dagsskrá:
„Í trausti þess, að næsta búnaðarþing taki mál þetta til meðferðar, og beini till. sínum til alþingis, tekur deildin fyrir næsta mál á dagsskrá.“
Ef það þætti skifta nokkru, þá ætti búnaðarfjelagið að geta rannsakað þetta svo fljótt, að það gæti látið álit sitt í ljós fyrir næsta þing.
Ef dagsskráin fellur nú, þá verð jeg að greiða atkv. móti ályktuninni.