22.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (498)

4. mál, breyting á alþingistíma

Einar Jónsson:

Eg hefi ásamt þrem öðrum þingmönnum leyft mér að koma fram með br.till. við frv. þetta. Hún er á þskj. 32 og er þess efnis, að þing byrji fyrsta virkan dag í nóvembermánuði í stað júlímánaðar. Ástæðurnar sem færðar voru til meðmæla þessu frv. við fyrstu umræðu, voru æði veigalitlar frá mínu sjónarmiði. Þær voru aðallega tvær. Sú fyrri var, að háskólinn og þingið gætu eigi komist fyrir saman í þinghúsinu. Þessi röksemd var hrakin með því, að um mjög langan undanfarinn tíma hefðu þau sömu herbergin, sem háskólinn notar nú, verið notuð til að geyma landsbókasafnið o. fl. dauða muni. Eg skil eigi þingmenn séu þeim mun digrari nú .en þeir voru áður, að þeir geti eigi komist fyrir í þeim sömu herbergjum, er þeir gerðu sig ánægða með fyr, og voru álitin fullnægjandi þá. Hin ástæðan var sú, að sparnaður væri að því, að halda þing að sumri til. Það er vafalaust satt, að það væri sparnaður fyrir landslýð, en eg hygg, að það fé, er landið mundi spara á þenna hátt, yrði tekið úr buddu sveitarmannanna að mestu leyti. Sumarið er dýrasti tíminn fyrir bændurna og enda líka fyrir sjómenn; en aftur eru haustmánuðirnir ódýrastir báðum stéttum. Það má svo að orði kveða, að mánuðirnir nóvember og desember séu einu frímánuðurnir, sem sjó menn hafa. Auðvitað ber líka að taka tillit til annara stétta, t. d. lögfræðinga, presta, lækna og yfirleitt allra embættismanna, en það þori eg að fullyrða, að þeim er eins hægt að sitja á þingi á haustin eins og á öðrum tíma árs. Auðvitað geta þeir sagt hið sama og bændur, að þeir megi helzt aldrei frá heimilum sínum eða embættum fara, svo að frá því sjónarmiði skiftir litlu fyrir þá, hvenær þing er haldið, en þó mega t. d. sýslumenn alls eigi missa tíma frá embættum sínum á vorin meðan á manntalsþingum stendur o. fl. þesskonar. Eg mundi því telja tillögu hv. þ. m. Sfjk. (V. G.) um að þing skuli byrja 17. júní þá óheppilegustu öllum stéttum.

Ef litið er á tölu bænda á þingi, þá hafa þeir verið undanfarið svo fáir, oftast 1/5—1/4 allra þingmanna, að virðast mætti, sem eigi bæri að taka neitt verulegt tillit til þeirra; en þegar litið er á, hve fjölmenn bændastéttin er í landinu, þá ber sannarlega að taka þá með í reikninginn engu síður en aðrar stéttir. Því hefir verið haldið fram, að bændur væru eigi eins vel hæfir til þingmensku eins og embættismenn vegna mentunarleysis. En eg hygg, að reynslan hafi sýnt það, að bændur hafi framkvæmt skyldu sína á þingi engu ver en embættismenn. Eg gæti tilnefnt marga bændur, sem hafa verið mestu menn þingsins á sínum tíma. Eg get eigi stilt mig um að benda á í sambandi við þetta, að það er einkennilegt að heyra lögfræðinga hér á þinginu, sem þó verða að teljast miklir ráðamenn í löggjöfinni, þræta um, hvernig skilja eigi nýútgefin lög, er þeir sjálfir hafa samið. Það eru eigi meir en fáir dagar síðan rifist var í marga tíma um, hvernig skilja ætti kosningarlögin; svo óljós eru þau og átti þó mikið að vera vandað til þeirra, enda voru þau samin af skólagengnum mönnum. Þetta sýnir, að það er eigi einhlítt til þess að vera hygginn þingmaður og góður löggjafi, að hafa fengið skólamentun. Enda hafa, eins og eg drap á áðan, um undanfarinn mannsaldur margir af beztu mönnum þingsins verið alþýðumenn. Eitt vil eg benda á enn; reynslan hefir sýnt það, að bændur eru miklu óeigingjarnari á þingi en embættismenn. Ef menn rannsaka fjárlög þinganna frá löngu liðnum tíma, þá mun það koma í ljós, að mikill meiri hluti svonefndra bitlinga og annara sérstakra fjárveitinga til aukinna fastra launa o. s. frv., hefir farið til embættismanna. Þetta er eigi nema eðlilegt þegar þess er gætt, að skyldulið embættiumanna fer vanalega skólaveginn, en unglingar, sem verið hafa í skóla um lengri tíma, hafa iðulega óbeit á algengri vinnu þegar þeir koma út fyrir skólaþröskuldinn aftur og vilja eigi snerta á verkfæri framar. En eðlilega þurfa þeir að eta eins og aðrir menn og þessvegna reyna embættismenn iðulega að herja fé út úr landssjóði, til þess að skyldulið þeirra þurfi eigi að svelta.

Eg skal svo eigi þreyta háttv. deild með lengri ræðu, en að eins taka það fram aftur, að heppilegasta þingtímann álit eg haustmánuðina, en óheppilegast, að þing byrji 17. júni. Næst beztan þingtímann álit eg þann, sem nú er lögboðinn, 15. febrúar.