09.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í B-deild Alþingistíðinda. (519)

10. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Jón Magnússon:

Eins og hv. deild er kunnugt er þetta mál ekki nýtt, 1909 var af stjórninni upphaflega ætlast til, að veittar yrðu 240 þús. kr. til nýrra símalagninga, en sökum fjárhagsástæðna landsins tók þingið ekki nema nokkurn hluta af þeirri tillögu til greina. Á þinginu 1911 var ekki lagt svo mikið til símanna sem landsímastjóri taldi nauðsynlegt. Þá kom fram frumv. frá háttv. þm. S. Þing. (P. J.) og háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) sem var bygt á till. landssímastjórans og samþykt hér við 3. umr., óbreytt í aðalatriðunum, en kom ekki til umr. í efrideild, og nú hefir stjórnin tekið það upp, lítið eitt breytt, sömuleiðis eftir tillögum landssímastjóra. Nefndin leggur líka til að það verði sþ. hér um bil óbreytt, og tek eg alt þetta fram til að sýna, að frv. er vel hugsað og þar tekið tillit til alls, sem krafist verður með sanngirni. Eg vona því, að hv. deild fari ekki að gera á því miður vel hugsaðar breytingar, sem mundu verða málinu til tafar, eða til þess, að það næði alls ekki fram að ganga, því að til þess eru því minni líkur, sem frv. er meira breytt. Það þýðir lítið að vera að bæta inn í það miklu af nýjum símum, því að svo er til ætlast, að haldið verði áfram að leggja síma um landið svo fljótt sem auðið er með nokkurri skynsemd og eftir því sem starfsmenn eru til og efni. Hitt er engin skynsemi, að ætlast til of mikilla eða fljótra framkvæmda.

Nefndin leggur nú til, að á frv. verði gerðar tvær óverulegar breytingar. Hún hefir borið sig saman við landssímastj., og kemur ekki með aðrar br.till., en þær, sem hann hefir getað fallist á. önnur br.till. er sú, að sími verði lagður til Hellissands um leið og til Ólafsvíkur. Að því mundi verða hagur, því að þetta er stórt þorp — íbúar á fimta hundrað — og gott fiskiver og liggur skamt frá Ólafsvík, svo að kostnaðurinn yrði ekki mikill, líklega ekki nema 4 þús. kr., svo það er óhætt að segja að skynsamlegt væri að haga þessu þannig.

Nefndin hefir ekki fundið ástæðu til að hækka tillag Snæfellsness- og Hnappadalssýslu fyrir þetta. Það hérað hefir þegar lagt mikið til síma, eftir mannfjölda og efnum (8000 kr.) og enn er ætlast til, að það leggi 4 þús. kr. til „Ólafsvíkursímans“. Líka leggur nefndin til, að tekinn verði í 2. flokk sími til Hríseyjar. Hann mundi kosta lítið, og búið að ákveða hvað sveitin leggi fram í tillag til hans en Hrísey er veiðistöð góð og mundi nota símann mikið. Það kom til orða í nefndinni að leggja til um síma frá Akureyri til Grenivíkur, en hvarf frá því aftur. Það kom til orða í nefndinni, hvort ekki væri rétt, áður en farið væri að verja arðinum af landsímanum til nýrra síma af 3. flokki, að draga frá því fé af símalánum, en nefndin hefir þó ekki viljað seinka svo lagningu 3. flokks síma. Nefndinni þótti ekki ástæða til þess, þrátt fyrir ummæli hv. fyrv. ráðherra, að breyta 6. gr., því að hana vantaði skýrslur um það mál, heldur lét hún sér nægja, eftir samkomulagi við fyrv. og núv. ráðherra, að bæta við ákvæði á þgskj. 150, og ætti það að vera nóg. Um aðrar br.till. er þess að geta, að nefndin hefir borið sig saman við landsímastjórann um þær, og áleit hann ekki ástæðu til að taka þá síma, sem þar eru nefndir, upp í 2. fl. Um símann til Suðureyrar í Súgandafirði gat hann þess, að kostnaðurinn mundi verða 9 eða 11 þús. kr. — hann hafði ekki skjölin hjá sér. Um þá síma, sem á þgskj. 182 er ætlast til að bætist í 2. fl., hafði hann það að segja, að ef það ætti að verða, þá væri ástæða til að taka alla þá síma, sem taldir eru í 3. flokki, upp í 2. flokk, að minsta kosti væri rétt að taka símann frá Borgarnesi vestur til Grundarfjarðar, Þingvallasímann o. fl. á undan þeim. Það er ekki mikið unnið við það, að flytja símana yfir í 2. flokk, því að ef frv. verður samþ., verður hvort sem er haldið áfram að leggja þá í þeirri röð, sem þar er gert ráð fyrir, eftir því sem kringumstæður leyfa. Og skyldi það sýna sig, að svo mikil nauðsyn sé á að leggja einhvern 3. fl. síma áður en 2. fl. er fullger, þá geta hlutaðeigandi héruð gert það sjálf og landssjóður svo keypt þá síma á eftir, eins og svo oft hefir verið gert. 3. og 4. brt. á þgskj. 182 þykja nefndinni mjög varhugaverðar; raunar er ekki farið fram á svo fjarska mikið fé, sérstaklega í breyt.till. 3, en eftir á yrði þetta þó dýrt, því að eftir reikningi landsímastj. hafa sveitirnar þegar lagt fram 84 þús. kr. til síma, og ef þgskj. 182 yrði samþ., þá yrði að borga þessar 84 þús. til baka, því að það væri engin sanngirni, að þær sveitir, sem enn hafa ekki fengið síma, sæti svo miklu betri kjörum en hinar. Þótt ýmsar símalínur séu ekki hærra settar, en í 3. fl., þá koma þær þó að sjálfsögðu þegar 2. fl. er lokið, og afgangurinn af tekjum landsímans er ætlaður til þess að leggja þær. Sá afgangur var í fyrra 63 þús. kr., og var það talsvert meira en gert hafði verið ráð fyrir. Og í ár þykir landssímastjóranum sennilegt að tekjurnar verði 75 þús. fram yfir reksturskostnað, svo að alt útlit er fyrir að gott framhald verði á símalagningum, og menn ættu ekki að leggja kapp á að vera að flytja símana úr einum flokki í annan; þeir verða líklega hvort sem er lagðir eftir mati landsímastjórans og samkv. þessu frv. — Nefndin viðurkennir það, að töluvert mælir með brt. á þgskj. 143, sem fer fram á að setja línuna frá Ölfusárbrú að Garðsauka og þaðan til Vestmannaeyja í 1. fl. Sérstaklega er það ósamræmilegt, úr því að línan héðan að Ölfusárbrú er í 1. fl., að hafa þá ekki alla leiðina í sama fl. Þó hefir nefndin ekki viljað fallast á þetta, fyrst og fremst af því, að hún er hrædd við afleiðingarnar af því, að gefa Rangárvallasýslu eftir tillagið til símans frá Ölfusárbrú að Garðsauka. Það munar og miklu, hvort sveitirnar bera sinn hluta af starfrækslukostnaðinum eða ekki, og þá yrði kostnaður við stöðina í Vestmannaeyjum miklu meiri en ella.