09.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (521)
10. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Ráðherrann (H. H.):
Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.), talaði mikið um það ranglæti, að sum héruð yrðu að borga tillag til símanna, en sýslurnar sem liggja í leiðinni frá Seyðisfirði til Reykjavíkur hefðu sloppið við það. Má vera að í skjótu bragði kunni að virðast svo, sem þetta sé misrétti, en ef betur er að gáð, munu menn ganga úr skugga um það, að þetta varð svo að vera. Það var ekki hugsan þingsins að hlynna að þessum héruðum öðrum fremur, en það var nauðsyn, að leggja símann um þessar sýslur, til þess að ná því lang-mesta tillagi, sem fram hefir verið lagt til landsímanna af öðrum en landssjóði, 300 þúsund króna tillaginu, sem Stóra Norræna ritsímafélagið lagði fram til þess að koma sæsímanum í samband við Reykjavík og aðra kaupstaði landsins. Þess vegna gat landið slept því, að heimta tillag frá þessum sýslum, enda hefði það ekki verið til neins að krefjast slíks. Þá var víða mótspyrna gegn símalagningunni og ómögulegt að fá sumar sýslurnar til að leggja neitt af mörkum til hennar fyrst í stað. Hinar línurnar, sem síðan hafa bætst við, hafa allar verið lagðar eftir eindreginni ósk héraðanna. Kröfurnar um nýjar símalagningar hafa verið miklu meiri og örari en svo, að unt hafi verið fyrir landsjóð að sinna þeim öllum í einu, og þar sem stjórn og þing verður að hafa einhver takmörk fyrir því, hverjar kröfur skuli taka fyrst til greina, þá liggur beinast við að fara eftir því, hvort menn vilja eitthvað á sig leggja til þess að þeim verði fullnægt. Sama er að segja um tillög sveitafélaga til starfrækslu á aukastöðvum, þ. e. stöðvum, sem ekki eru nauðsynlegar vegna aðalsímans. Hefðu þau tillög ekki verið heimtuð, þá hefði ekki verið mögulegt að koma eins miklu í framkvæmd og gert hefir verið. Síðan 1906 hefir símastöðvum fjölgað úr 22 upp í 93 árið 1911. Verði brugðið frá þeirri reglu að láta sveitafélög leggja nokkuð til starfrækslustöðva, þá getur aukningin ekki með nokkru móti orðið tiltölulega jafn mikil eftirleiðis; landssj. getur ekki risið undir kostnaðinum, sem verða mundi við rekstur stöðvanna, ef landstjórnin ætti að annast hann.
Þá sagði hv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th), að skýrslan um ágóða landsímans hefði alt af verið röng, vegna þess að gleymst hefði að reikna með rentur af fé því er búið væri að leggja í símalagningar, og í annan stað væri rangt að draga ekki frá tekjunum tillagið til Stóra Norræna félagsins til sæsímans. En hvorugt þetta er rétt athugað. Að því er snertir vexti af stofnkostnaði, má fyrst geta þess, að þegar um önnur opinber viðskiftatæki er að ræða, svo sem vegi, brýr eða önnur samgöngufæri, þá er ekki vant að telja til kostnaðar eða árlegra útgjalda við þau vexti af því, sem kostað hefir að kom þessu upp, heldur er það látið mæta gagninu, sem landsmenn hafa af fyrirtækinu. En jafnvel þótt símarnir séu hafðir að olbogabarni í þessu efni, og annari reglu fylgt, þegar dæmt er um gagnsemi þeirra, þá sést, að þeir þola það. Jafnvel þótt árlegir vextir af stofnkostnaði séu reiknaðir með, þá sést það á skýrslum símans, að hann hefir gefið talsvert meiri tekjur umfram árlegan kostnað við starfrækslu, en vöxtum af stofnkostnaði nemur. Árið 1911 var landssjóður búinn að leggja rúmar 848 þús. kr. í kostnað við símalagningar alls. Það ár voru tekjur af símanum 124.347 kr. og tekjuafgangur var 61.148 kr. Þó nú fullar rentur væru reiknaðar af þessum stofnkostnaði, þá væru þær aldrei meir en ca. 34 þús. kr., og verður þá eftir hreinn arður auk vaxta ca. 27 þús. kr. og þó tillög sýslu- og hreppafélaga til símalagninga frá byrjun, sem nema ca. 84 þús. kr., séu talin með stofnkostnaði, er landið hefir fram lagt, þá verða vextir af honum ekki meira en ca. 37 þús. kr. — Að draga tillagið til sæsímans frá tekjum landssímans nær engri átt, því að það er tvent algerlega ólíkt og aðgreint, símakerfið innanlands og símasambandið við útlönd. Við leggjum til millilandasímans að sínu leyti alveg eins og til millilanda póstskipaferðanna, og kemur það ekkert landssímanum við. Enda er það framlag ekki svo mikið að við fáum það ekki fullkomlega endurborgað með því ómótmælanlega gagni, sem verzlun og viðskifti landsins hafa af símasambandinu við útlönd. Það væri blátt áfram villandi, ef þetta tillag væri tekið upp sem útgjaldaliður í reikning landsímans.
Þó að eg geti ekki verið hv. þm, N.-Ísf. (Sk. Th.) samþykkur að þessu leyti, get eg á hinn bóginn fallist á till. hans um síma norður á bóginn frá Ísafirði til Horns. Hann gæti haft mikla þýðingu fyrir veðurfræðina, ísfréttir, skipafréttir, fiskifréttir o. fl., og tel eg rétt, að hugsað sé til að koma því sambandi bráðlega í kring.