09.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í B-deild Alþingistíðinda. (522)
10. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Mattías Ólafsson:
Í frv. þessu er gert ráð fyrir 3 flokkum símalína. Símalínur 1. flokks eru allar þegar lagðar og eru það aðal-línurnar. Línur þær er settar hafa verið í 2. flokk, eru sumar þegar lagðar en aðrar ólagðar enn. Í 3. flokk eru settar ýmsar fyrirhugaðar símalínur, og er ætlast til að þær verði lagðar fyrir arðinn af 2 flokks línunum. Að vísu sagði hv. framsm. (J. M.), að komið gæti fyrir að 3. floks línur yrðu lagðar á undan 2. floks línum, en eg tel vafasamt að svo verði. Þegar gera á slíka flokkun, verður að gæta þess, að í efri flokk séu settar þær línur, sem meira útlit er fyrir að borgi sig eða meiri nauðsyn er á, en í lægra flokk þær sem minni líkindi eru til að beri sig og minni nauðsyn er á, ekki sízt þar sem þær á að byggja fyrir arðinn af hinum. Eg er hræddur um, að þessari reglu sé ekki alstaðar fylgt í frv. Það má benda á línur, sem settar hafa verið í 3. flokk, sem vissa er fyrir að muni gefa meiri arð en sumar þær er settar hafa verið í 2. flokk. Eg hefi komið með br.till. á þgskj. 145, í þá átt að hliðarsíminn til Suðureyrar í Súgandafirði verði settur upp í annan flokk. Eg verð að halda því fram, að sú lína muni gefa betri arð en sumar þær sem eru í 2. flokki, t. d. línan frá Borðeyri til Búðardals. Eg skal taka það fram, að eg vil ekki leggja fjöður í veg fyrir þann síma, en eg álit að Súgandafjarðarlínan ætti að ganga fyrir honum. Eftir því sem landsímastjóri hefir skýrt frá, borgar Vestfjarðasíminn sig einna bezt af öllum símum á landinu, og hann mundi borga sig enn betur ef þessi hliðarlína væri lögð. Suðureyri er áreiðanlega sú bezta veiðistöð, sem til er á landinu. Vestmanneyjar eru að vísu góð veiðistöð, en þó er fisklaust þar nokkurn hluta árs. Sama er að segja um Siglufjörð. En á Súgandafirði er aldrei fisklaust alt árið. Enda hefir þorpinu farið afar mikið fram á örstuttum tíma. Fyrir 18 árum var þar ekkert hús, en nú eru þar nálega 300 íbúar að staðaldri, og á 5. hundrað á sumrum. Þar kemur á land frá 100 til 120 þús. af fiski á hverju ári. Nú eru gerðir út þaðan 30 mótorbátar. Það er því sýnilegt, að þorpsbúum er stór þörf á síma, t. d. til að fá fréttir af síld, sem getur verið á öðrum fjörðum fyrir vestan, þegar hún er ekki á Súgandafirði, til að ná í lækni o. s. frv. Eg sé að nefndin hefir tekið í 2. flokk síma frá Ólafsvík til Hellisands, en sá sími liggur innan eins hrepps, Neshrepps, og skyldi maður því hugsa að hreppurinn ætti að leggja hann. Eg legg ekki í móti þessum síma, en finst að þeir símar ættu að ganga fyrir honum, sem meiri nauðsyn er á og meiri arðsvon af.
Hv. framsm.m. (J. M.) sagði, að Súgandafjarðarsíminn mundi kosta 11 þús. kr. En eg hefi lagt fram hér á lestrar salnum áætlun landssímastjóra um hann og er kostnaðurinn þar ekki áætlaður nema 9 þús. kr. Eg get hugsað mér að Súgfirðingar mundu jafnvel fúsir á að hækka tillagið um helming ef það gæti orðið til þess að þeir fengju símann í nánustu framtíð. Allri sýslunni er nauðsyn á símanum. Sjómenn úr öðrum hlutum sýslunnar hleypa oft inn á Súgandafjörð í vondu veðri, og vita þá skyldmenni þeirra ekkert um þá. Það kom fyrir í vor að menn voru 5 daga í vafa um bát, sem hleypt hafði inn á Súgandafjörð í vondu veðri.
Þegar litið er á málið frá praktísku sjónarmiði, þá er það sýnilegt, að þar sem byggja á 3. flokks símana fyrir það sem græðist á 2. flokks símum, þá ber að setja þá í 2. flokk, sem útlit er fyrir að gefi meiri arð.