09.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (523)
10. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Bjarni Jónsson:
Eg er meðflutningsmaður að till. á þgskj. 182 og er þar einkum ein, sem eg ber fyrir brjósti, en það er sú till. að sími frá Búðardal að Tjaldanesi um Ásgarð verði tekinn upp í tölu 2. flokks síma. Þessi till. kemur fram samkvæmt ósk kjósenda minna. Mér hefir láðst að koma fram með till. til vara um tiltekið tillag í samræmi við þá málsgrein 5. gr., sem við höfum lagt til að feld sé burtu, ef sú tillaga yrði ekki samþykt, en eg mun koma fram með hana til 3. umr. Aðalástæðan til þess að þessa síma er óskað, er sú, að mjög erfitt er að sækja lækni úr vesturhluta héraðsins. Að vísu hefi eg komið fram með frv. í þá átt, að læknishéraðinu verði skift í tvent, en eg hefi ekki sem allra bezta von um að það verði samþykt. Það munar helmingi fyrir íbúa í vesturhluta sýslunnar að geta símað til Búðardals eftir lækninum. Í Saurbænum dóu ekki alls fyrir löngu 5 eða 6 börn úr barnaveiki fyrir þá sök eina, að ekki varð náð nógu fljótt í lækni. Svínadalur liggur í milli og er mjög illur yfirferðar á vetrum. Þess má einnig geta, að við borð liggur að leiðin inn á Salthólmavík verði mæld. Verði það gert, þá mundi verzlun og kaupskapur í þessum hluta sýslunnar aukast mjög, svo að þörfin á símasambandi við aðra verzlunarstaði, og þá líka Reykjavík, mundi brátt gera vart við sig. En eins og eg benti á áðan, þá er aðalástæðan erfiðleikarnir að sækja lækni, og finst mér því rétt að héraðsbúum verði með þessum síma bætt upp að læknishéraðinu verður ekki tviskift.
Þá vildi eg minnast lítið eitt á till. um að fella burtu framlögin frá héruðum. Eg mun ekki taka neinn aðalþátt í umræðunum um það atriði, því að hv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) mun tala þar fyrir okkur alla, en eg vil láta þess getið, að eg er enn á þeirri skoðun, sem eg hefi lýst á tveim undanförum þingum, að eg álít það hróplegt ranglæti við þau héruð, sem látin eru borga tillög til símalagninga innan héraðs á móts við hin sem ekkert borga. Hæstv. ráðherra (H. H.) sagði að aðalsíminn frá Reykjavík til Seyðisfjarðar hefði ekki verið lagður styrklaust, en það er ekki rétt, því að hann fékk engan styrk frá þeim héruðum sem hann var lagður um. (Ráðh.: Eg átti við framlagið frá Stóra Norræna félaginu.) Það skilst mér hafi verið ekkert annað en milligjöf fyrir undanþágu frá því að leggja símann til Reykjavíkur í stað hinnar styttri leiðar til Seyðisfjarðar. Allar sýslur eiga að hafa jafnan rétt til þessa framlags, og er því tvöfalt ranglæti að láta sumar sýslur taka það alt, en aðrar ekkert af því fá, heldur í þess stað borga fé úr sínum vasa. Hinu vil eg trúa, sem hæstv. ráðherra sagði, að þingið hafi ekki hugsað þetta sem neitt misrétti, heldur hafi það hugsað sér, að hér væri tækifæri, að neyða menn til að leggja út peninga úr sínum eigin vasa. Það er yfirleitt meginregla að taka peninga hvar sem þeir fást og með hvaða móti sem þeir fást. Hitt hefir þingið átt bágt með að skilja, að allir menn eiga jafna kröfu til verndar þess og til aðstoðar landsjóðs. Auðvitað mundi af þessu leiða, að landsjóður yrði að borga aftur það, sem lagt hefir verið fram. En það getur ekki talist harður kostur; þar sem hér er um lán að ræða sem landsjóður hefir fengið vaxtalaust. Þeim gjaldauka yrði svo jafnað niður á landsmenn, og þá jafnaðist alt aftur. Það sem hæstv. ráðherra talaði um stöðvarnar og þeirra kostnað, kemur ekki okkar tillögu við. Við höfum ekki ætlast til að því yrði breytt.
Að öðru leyti ætla eg ekki að svara því sem til mín hefir verið talað. Eg hefi að eins viljað lýsa þessari skoðun minni á málinu, sem hefir valdið því, að eg hefi borið fram þessa breytingartillögu ásamt þeim tveimur hv. þm., er á þingskjalinu standa. Og þessu fylgjum við af því að við teljum það rétt, en ekki af því að það sé okkur til hagsmuna eða okkar kjördæmum.