09.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (529)

10. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Skúli Thoroddsen:

Háttv. þm. Dal. (B. J.) hefir að vísu svarað hæstv. ráðherra (H. H.), en þó vildi eg bæta við nokkurum orðum, að því er snertir 2 til 3 atriði.

Hæstv. ráðherra (H H.) sagði, að tillaginu frá „Stóra norræna félaginu“ hefði verið varið til símalagningarinnar. Það er hverju orði sannara. En þá er líka aðgætandi að „Stóra norræna ritsímafélagið“ fekk, gegn tillagi sínu, einkarétt hjá landinu, eða fult ígildi borgunar, — sama sem ákveðna borgun. Að réttu lagi átti því eigi eitt hérað landsins öðru fremur rétt til tillagsins, sem land- sjóði var goldið fyrir einkaleyfið, og sem varið var til aðal-símalínunnar, milli Seyðisfjarðar og Reykjavíkur.

Þar sem hæstv. ráðherra (H. H.) tók það fram, að það væri nauðsynlegur og réttur mælikvarði, að því er þörf símanna snerti, hvort héruðin vildu nokkuð á sig leggja til þess að fá þá eða ekki, þá vil eg benda á, að vitneskju um þörfina getur þingið fengið á margan annan hátt, bygt t. d. á þekkingu kunnugra þingmanna o. s. frv.

Hæstv. ráðherra (H. H.) sagði, að ekki væri rétt að telja árgjaldið frá landsjóði til „Stóra Norræna“, 35 þús. kr., sem kostnað við rekstur landsímanna, en það er um þetta atriði, eins og um vexti af símalagningarkostnaðinum, að eg get ekki verið honum samdóma, þótt raunar skifti það ekki miklu; en aðgætandi er þó, að fé þetta er greitt, til þess að landsíminn geti komið að fullum notum.

Viðvíkjandi því, hvernig síminn beri sig, þá hygg eg og, að ef öll kurl koma til grafar, eins og eg drap á, þá sé reyndar of mikið gert úr arðinum, því að þótt nytsamt geti verið, og oft komið sér vel, að embættismenn og stjórnvöld noti símann, og skemtilegt sé að hafa veðurskýrslur, þá eru tekjurnar af því þó ekki peningar í vasann.

Háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) þótti sanngjarnt, að héruðin greiddu tillag, og sýndu á þann hátt vilja sinn og sönnuðu þörfina. — En hann gætir þess þá eigi, að þetta felur í sér tvenns konar ranglæti gegn héruðunum, er utan aðal símalínunnar eru: 1) að þau fá símann seinna og 2) að þegar þau loks fá hann, verða þau að borga fyrir það.

Sami háttv. þm. áleit, að síminn að Höfn á Hornströndum mundi ekki borga sig. Þetta sprettur af ókunnugleika hans, og hefir þó verið bent á, að þangað sækir mesti fjöldi útlendra og innlendra fiskiskipa.

Fjölda héraða þeirra, sem tillög er ætlað að greiða, gerir fámennið erfiðara fyrir, og lega og staðhættir eru þannig, að þau eru ver sett; en við það, að símar koma í önnur héruð, virðist svo sem örðugleikarnir vaxi, og þau verði enn meiri útkjálkahéruð, en áður.

Það er undarlegt, að leggja á móti því, að afnema héraðatillögin, af því að landsjóður hafi þegar fengið 84 þús. kr. í héraðatillögum, því að ekki munar hann það miklu, að endurgreiða þá upphæð, og bæta þannig gerðan órétt, — verður það eigi að mun tilfinnanlegt, borið saman við sýslu- og hreppsfélögin.

Að öðru leyti er eg þakklátur hæstv. ráðherra (H. H.) fyrir það, hvernig hann tók í br.till. að því er snertir væntanlegar símalagningar í Norður-Ísafjarðarsýslu, og vænti þess því, að hún fái góðan byr í deildinni.