19.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í B-deild Alþingistíðinda. (551)

9. mál, landssjóður kaupi einkasímann til Vestmannaeyja

Ráðherrann (Kr. J.):

Hv. þm. G. K. (B. Kr.) vil eg svara því, að ólíku er saman að jafna að útvega 45 þús. kr. lán eða 500 þús. kr. Auk þess er full ástæða til að búast við að þetta lán muni borga sig vel. Ef dæma má eftir þeirri reynslu sem fengin er af síma þessum og eftir þeim vöxtum er hann þegar hefir gefið. Eg tel víst að auðvelt verði að fá þetta lán með sæmilegum kjörum; það hefir aldrei reynst örðugt fyrir okkur að fá lán til arðvænlegra fyrirtækja. T. d. fekst undir eins lán til að kaupa símakerfi Reykjavíkur og var það þó yfir 70 þús. kr. Eftir skýrslu landsímastjórans er sími þessi mjög tryggur og ekkert útlit fyrir að hann bili frekar en aðrir símar. — Eg get bætt því við, að það eru ekki hluthafar sem óska að selja símann, heldur landsstjórnin sem álítur hyggilegt, að nota kaupheimildina að honum vegna hinna góðu tekna sem líklegt er að fáist af honum.

Þeirri spurningu, hvers vegna samningurinn við leyfishafa hafi verið þannig úr garði gerður að annað hvort yrði landið að kaupa símann eftir eitt ár — eða réttara sagt, væri hluthöfum skylt að láta hann af hendi eftir eitt ár —, eða ekki fyr en eftir 9 ár, get eg svarað þannig að stjórnin áleit að svo gæti farið, að þetta þing óskaði að eignast símann nú þegar, og var því landinu áskilinn þessi réttur. En hins vegar var 9 ára fresturinn settur eftir ósk hluthafa, ef svo skyldi fara að þetta þing keypti ei símann. Því eins og eg hefi sagt áður, held eg að hluthafar óski ekki að selja hann, en eru skyldir til þess ef þingið óskar nú að kaupa.