19.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (552)

9. mál, landssjóður kaupi einkasímann til Vestmannaeyja

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg get ekki að því gert, að mér sýnist einhver hræfuglasvipur á þessu frv. Síðasta þing neitaði Vestmanneyjingum um styrk til síma; þeir sýndu þá aðdáanlega framtakssemi og manndáð að leggja símann sjálfir. En nú er ætlast til að fyrsta þing á eftir taki af þeim símann af því að fram er komið að hann er arðvænlegt fyrirtæki. Auðvitað er eg því hlyntur að sími þessi sé keyptur þegar fjárhagur landssjóðs leyfir. En hann getur ekki talist verulega glæsilegur nú, og sýnist mér því nægilegt að athuga málið á næsta þingi og lofa Vestmanneyingum að halda símanum fyrst um sinn.