21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í B-deild Alþingistíðinda. (568)

11. mál, samningur um einkaréttarsölu á steinolíu

Ráðherrann (H. H.):

Eg skal vera stuttorður. Eg álit tilgangslaust að að hefja hér almennar umræður um einokun og einkasölu, en ekki get eg látið sannfærast af almennum orðtækjum og slagorðum, sem hv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) varpaði fram. En á hitt vildi eg benda, að það væri rétt að olíuverð í Ameríku væri óbreytt, en það væri flutningsgjaldið yfir Atlantshafið sem hefði hækkað. Auk þess er það að eins Standard Oil og þau félög, sem þeim hring eru háð, sem hækkað hafa steinolíuna, en ekki önnur óháð félög. Vér í milliþinganefndinni skrifuðumst á við 3 stór félög í Ameríku, sem óháð eru þeim hring, þar á meðal var Texas Compagny, frá því veit eg að kemur ágæt olía, sýnishorn af henni hafa verið rannsökuð. Verði stjórninni veitt heimild til að gera samning um einkasölu á steinolíu, er hún ekki bundin við að semja við þau félög, sem háð eru Standard Oil og Rochefeller. Eg ímynda mér að nú sé hægt að fá frá Ameriku olíu sem ekki er hækkuð í verði, og íi Hamborg býst eg við að olían sé að eins hækkuð hjá þessu eina félagi. Auðsætt er að lögin gætu orðið til góðs fyrir landsfólkið, útvegsmenn, kaupmenn og fleiri þótt landssjóður ekki þyrfti þeirra til þess að afla sér tekna. Olían fengist með betri kjörum og kaupmenn losnuðu við bönd þau, er samningarnir við D. D. P. A leggja á þá, og eru þau þó ærið tilfinnanleg ef það er rétt, sem sagt var hér í deildinni áðan, að sumir þeirra væru bundnir til 1938. Móti slíkum heljar-samtökum, sem þeim er Rochefeller hefir myndað, er ekkert annað ráð en einokun, það er viðurkent af þjóðum, sem lengra eru komnar á menningarbrautinni en við.