21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í B-deild Alþingistíðinda. (569)
11. mál, samningur um einkaréttarsölu á steinolíu
Björn Kristjánsson:
Eg verð að skýra frá, hvernig eg hefi fengið upplýsingar um verð á steinolíu í útlöndum. Eg sendi í fyrradag svohljóðandi símskeyti til Hamborgar:
„Opgiv Kursen Petroleum Hamborgbörs, haster.“ Það er á íslenzku: „Skýrið frá verði steinolíu kauphöll Hamborgar. Hraðið yður.“
Svarið, sem var 28 tíma á leiðinni með símanum frá Hamborg til Reykjavíkur, hljóðar svo:
„50 kilo 9,15-8,85.“
Eg hefi líka upplýsingar um verð 1. jan. 1912, 20. des. 1911, 5. júní 1912, 28. júní 1912 og 29. júní 1911. Þeir sem vilja fullvissa sig um að eg fari með rétt mál, geta fengið að sjá skeytið hjá mér. Eg hefi líka fengið lánað símskeyti hjá kaupmanni hér í bænum, er hann fékk í gær um verð á pensylvanianskri steinolíu, hún kostar komin hér á höfn kr. 30,50. Út af því sem verið var að tala um að kaupmenn væru svo mjög samningum bundnir við D. D. P. A., sumir jafnvel til 1938. Þá skal eg taka fram, að sumir eru bundnir um miklu skemri tíma, þar á meðal einn að eins til 3. september næstk., og hann býðst til að útvega ódýrari olíu enn Steinolíufélagið danska hefir nú á boðstólum. Sú viðbára er æði þunn, að kaupmenn, sem nú verzla með steinolíu, séu bundnir samningum til svo og svo langs tíma. Þar með er gefið í skyn, að engir megi verzla með steinolíu nema þeir. En eg get fullvissað hv. þm. um að þeir hafa að lögum engan einokunarrétt hér á landi til steinolíusölu. Hver getur selt steinolíu, sem vill. Eg skal benda Íslendingum á, að ef þeir vilja fá ódýrt ljósmeti, þá þurfa þeir ekki annað en að setja flatbrennara í lampana sína, í staðinn fyrir hringbrennara, sem þeir brúka nú, því að þá má nota aðra olíu en ameríska olíu, sem er ódýrari. Með því móti gætu menn alveg komist hjá kaupum á amerískri olíu til ljósmatar og því engin óþægindi haft af verðhækkuninni á henni. „Parafin“, sem notað er til lýsingar á Skotlandi, er alveg eins góð olía, ef menn nota flatbrennara, og þar sjást ekki hringbrennarar í lömpum. Hvers vegna ættum við þá ekki að geta notað flatbrennara?
Tiltækilegasta ráðið til þess að vinna bug á einveldi steinolíufélagsins er að koma á fót til steinolíuverzlunar innlendu félagi, sem stjórn, þing og bankar að sjálfsögðu ættu að styrkja, en hitt er ekki rálegt, að innleiða eina einokunina, til þess að komast hjá annari. Það er að fara úr öskunni og í eldinn.
Viðvíkjandi Hamborgarskeytinu, sem eg las upp áðan, skal eg taka fram, að spurt var um verð á olíu yfirleitt og svarið ræðir líka um olíuverð yfirleitt, það sé 8,85 mörk til 9,15 mörk. Eg skal geta þess, að samanburðinn tók eg eftir lægra verðinu, því sem hagstæðast er frumvarpinu, sem hér er til umræðu. Eg ítreka, að ef menn vilja rengja það, er eg hér segi, þá geta þeir farið niður á símastöð og borið skeytið, sem eg held á hér, saman við frumritið á stöðinni.
Flutningsgjöld geta ekki haft svo mikil áhrif á steinolíuverðið að numið geti kr, 5,48 á hverri tunnu. Annars skiftir það engu í þessu sambandi, af hverju verðhækkuninn stafar. Um verðið í New- York veit eg ekki, en hitt veit eg, að það er ómögulegt að flutningsgjaldið á 150 kíló geti stigið um 6—7 mörk. Mér þykir mikið ef flutningsgjaldið frá New-York til Hamborgar fyrir hverja tunnu af olíu yfirstigi t. d. 2 kr., svo um kr, 5,48 farmgjaldshækkun geti ekki verið að ræða.
Eins og eg hefi tekið fram, þá er rétta leiðin til þess að tryggja landsmönnum hagkvæma steinolíuverzlun, að þingið, stjórnin og bankarnir taki höndum saman um að styrkja innlent verzlunarfélag til þess að keppa við steinolíufélagið danska. Tillaga mín í þessu máli er, að samþykt verði dagskrá, það er orðið svo áliðið þingtímans, að engin tök eru á að laga frumvarpið svo, að viðlit væri að samþykkja það.
Eg skal, dagskránni til skýringar, taka fram, þar stendur í henni: „Ef á kynni að þurfa að halda“, þá er þar með meint ef verðhækkunin heldur áfram. Þar sem talað er um milligöngu bankanna, þá er svo til ætlast að það eigi að vera bönkunum hvöt, til þess að gera vilja þings og stjórnar þar sem í dagskránni stendur: „eftir atvikum með þátttöku landssjóðs eftir föngum“, þá er það sett inn í tillöguna — ekki af því eg viti ekki að stjórnin hefir ekkert fé til umráða í þessu skyni — heldur á það að vera bending um að til sé þingvilji sem segja vilji: Hingað og ekki lengra.
Skal eg svo leyfa mér að afhenda hv. forseta dagskrána og óska þess að hún verði borin undir atkvæði að þessari umræðu lokinni.