31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (584)
13. mál, hagfræðisskýrslur um tóbaksinnflutning
Ráðherrann (H. H.):
Það var alveg rétt sem háttv. framsögum. (G. G.) sagði, nefndin áleit ekki hægt að útvega landssjóði bráðar tekjur með tóbakseinkasölu, en það sá hún að var nauðsynlegt að rannsaka hvernig ástatt væri í þeim löndum þar sem tóbakseinkasala er fremst á dagskrá, t. d. Sviss, Svíþjóð og Þýzkalandi. Yfirleitt er það stefna tímans að nota einmitt þessa vörutegund til einkasölu. Nú sem stendur er ekki unt að segja, hvort þessi aðferð mundi verða arðvænlegri fyrir oss Íslendinga en tolla-aðferðin. Til þess þurfa menn að vita ýmislegt um notkun tóbaks. Það kostar ekki mikið að útvega þær skýrslur, og eg skil ekki að þær gætu orðið úreltar á nokkrum árum eins og nefndin gefur í skyn, því að það nægir ef þær ákveða hlutföllin á tóbaksinnflutningnum. Eg álit þess vegna heppilegra að þingið leyfði að skýrslunum væri safnað, því að það er einasti vegurinn til þess, að skera úr vafanum ef aftur kemur fram spurningin um að nota þessa aðferð.