02.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í B-deild Alþingistíðinda. (652)

18. mál, æðsta umboðsstjórn landsins

Valtýr Guðmundsson:

Eg skal ekki segja mikið, en eg verð að taka undir það með hæstv. ráðh. (H. H.), að þetta er að útiloka aðra en embættismenn frá því að verða ráðh. Þeir fá eftir þessu sæmilega góð kjör, sem í embættum hafa setið, en aðrir fá litið. Og þótt hv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) segi að duglegir menn geti komist úr ráðherrastöðunni að samskonar störfum og þeir hafa haft áður, þá nær þetta engri átt, þegar rosknir menn setjast í ráðherraembætti. Segjum t. d. að kaupmaður, sem hefir stóra verzlun, eigi í hlut. Hann verður þá að selja öðrum verzlunina, og á þá líklega alls ekki kost á að kaupa hana aftur, og mjög vafasamt hvort hann hefði hag af því, að byrja aftur á annari samskonar. (Bjarni Jónsson: Hann á þá andvirði þeirrar seldu). Mér skilst að menn álíti að embættismenn geti alment safnað fé, en þeir hafa ekki athugað hvað þeir segja. Mér er þvert á móti óskiljanlegt hvemig t. d. lægst launaði kennarinn við latínuskólann fer að lifa af 2 þús. kr. launum. Hitt er annað mál, þótt alþýðu kunni að vaxa í augum eftirlaunakostnaðurinn, þegar hann er allur talinn saman. Hv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) nefndi 100 þús. kr., en það er of hátt. Hann er ekki nema rúm 60 þús. kr. á ári. (Benedikt Sveinsson: Hann er mikið meira, að minsta kosti 160 þús. kr. á fjárhagstímabili). Eg man að þegar eg skrifaði í Eimreiðina fyrir nokkrum árum og taldi hann 60 þús., þá fékk eg bylmingsgrein á móti, þar sem sagt var að þetta næði ekki nokkurri átt, hann væri mikið lægri.

En hitt er annað mál og því er eg samdóma, að það er ergilegt þegar menn á bezta aldri eru settir á eftirlaun, sem vel gætu gengt embætti áfram, eða menn sem hafa gert sig ómögulega fyrir eitthvert sjálfskaparvíti, eins og drykkjuskap. En á því eiga stjórnirnar sök en ekki lögin. Ekki skil eg hvernig hv. þm. Dal. (B. J.) gat komið jarlinum að eða því, að eg mundi hafa áhyggjur út af eftirlaunum hans. Eg geri ráð fyrir að Danir mundu launa hann, eins og t. d. á sér stað hjá Bretum — en það mál liggur víst ekki við borð nú, enda liggur engin tillaga fyrir um það. En hitt er satt, að tillögur um jarlsfyrirkomulag hafa hér áður verið uppi með þjóðinni og verið samþyktar á mörgum löggjafarþingum. En svo eg víki aftur að því máli sem hér liggur fyrir, þá er eg sannfærður um að auk þess sem ráðherra — ef hann á eigi vissu fyrir eftirlaunum — mundi reyna til að sitja sem lengst, þá mundi líka þingið af brjóstgæðum hika við að kasta honum úr embættinu á kaldan klaka.

Hv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) sagði að þingræði væri komið á hér nú, og að enginn ráðherra mundi vilja né geta setið í trássi við það. Hann sagði að hér væri ekkert hervald; það er satt að nú er enginn her hér, en ekki er ómögulegt að sá tími komi, að til hervalds verði stofnað. Eg vil minna menn á það, að byggja ekki alt of mikið á þingræðinu. Ráðherra getur lengi setið í trássi við þingræði, ef hann hefir konungsvaldið með sér. Enda er þingræðið svo ungt hér, að engin trygging er enn fengin fyrir því að það haldist, einkum ef þingið fer að ráði sínu eins og raun varð á á síðasta þingi, þar sem það t. d. braut stjórnarskrána með því að hrifsa til sin umboðsvaldið og veita manni embætti á fjárlögunum. Í öðru lagi gerði þingið sig sekt í því að setja inn í stjórnarskr. það ákvæði, að bera skyldi sambandsmálið undir alþjóðaratkvæði; það liggur ekki undir þinginu að ákveða það, því vald þess nær eigi nema til sérmálanna. Eg gæti nefnt mörg fleiri dæmi til að sýna, að óvarlega var farið með þingræðið á síðasta þingi. Hefði stjórnin verið sterk, eða hefði sá maður er hana hafði á hendi viljað beita sér, þá gat stórhætta af því stafað fyrir þingræðið. Menn mega ekki halda að okkar unga þingræði þoli slík áföll jafnvel og þingræði sem er mörg hundruð ára. Eg vildi óska að frv. félli.