08.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (657)

18. mál, æðsta umboðsstjórn landsins

Sigurður Sigurðsson:

Ein af aðalmótbárunum gegn þessu frv. við 1. umr. þess hér í deildinni, var sú, að lækkun ráðherraeftirlauna, sem farið er fram á í því, komi að eins niður á þeim, sem verði ráðherrar úr embættisleysu. Þessa skoðun sína bygðu mótmælendur frumv. á niðurlagi 1. gr. Auk þess er það skoðun lögfræðinganna, að embættismenn, er verði ráðherrar, eigi rétt til eftirlauna samkv. hinum almennu eftirlaunalögum og að eftirlaunin miðist þá við ráðherralaunin. Fyrir mitt leyti efast eg nú um, að þessi skilningur sé réttur. Það er útaf fyrir sig enginn galli á frv. þó að eftirlaun þeirra, sem yrðu ráðherrar og ekki hafa verið embættismenn áður, séu ekki hærri en þetta — einar 1.000 kr. Og eg á bágt með að skilja þessa umhyggjusemi sumra embættismanna í deildinni fyrir þeim, sem kunna að verða ráðherrar og ekki hafa verið áður í embætti. Hitt er óneitanlega stór ókostur, ef þessi niðurfærsla á ráðherraeftirlaununum sem frv. ráðgerir, ekki geta náð til þeirra, sem eru embættismenn áður en þeir verða ráðherrar. En mér er ekki ljóst, hvernig þeim skilningi verður komið að í sambandi við frv. Skilningur minn í þessu máli er sá, að eftir að frv. þetta er orðið að lögum, þá séu ráðherraeftirlaunin að eins 1.000 kr. og að það gildi gagnvart öllum, með þeim undantekningum, sem getur um í 1. gr. Eftir almennum lögfræðisskýringum er ekki hægt að svifta embættismann, sem verður ráðherra, eftirlaunarétti þeim, sem hann hefir unnið til áður en hann verður ráðherra. En eftir frv. er hverjum óheimilt, sem verður ráðherra, að reikna sér eftirlaun fyrir þann tíma, sem hann gegnir þeirri stöðu, eftir hinum almennu eftirlaunalögum. Og mér heyrðist og skildist ekki betur en að hv. framsm. (L. H. B.) héldi fram sama skilningi við 2. umr. frv. Sé það ekki rétt hjá mér, þá leiðréttir hann það. Sé það réttur skilningur, að ráðherrastöðuna beri í þessu sambandi að skoða sem embætti, með rétti til eftirlauna, ófrávíkjanlegum samkvæmt eftirlaunalögunum — en það er 1/5 af embættistekjunum og 20 kr. fyrir hvert þjónustu- ár —, þá skilst mér eigi betur en að sá réttur gildi þá alveg eins gagnvart þeim, sem yrðu ráðherrar úr embættisleysu. Hafi embættismaður, sem verður ráðherra þennan rétt, þá gildir það vitanlega alla, sem komast í þá stöðu, hvort sem þeir hafa áður verið í embætti eða ekki. Við það að verða ráðherra, er þá maðurinn orðinn embættismaður, þótt hann hafi ekki verið það áður og á þá sama rétt til eftirlauna og allir aðrir embættismenn. Þetta er alveg rökrétt útfærsla á þeim skilningi, að embættismaðurinn, sem verður ráðherra, eigi rétt til þess að reikna eftirlaun sín eftir launaupphæð þeirri, sem fylgir ráðherrastöðunni.

Eg býst við nú að lögfræðingarnir vilji ekki skrifa undir þetta. Afleiðingin af því er þá sú, að skoða verður ráðherrastöðuna sérstaka í sinni röð, og að ákvæði eftirlaunalaganna um það, hvernig beri að reikna út eftirlaun embættismanna, gildi ekki um ráðherra, sem slíka. Mér virðist og ákvæði 2. gr. stjórnarskr. benda á þetta. Þar segir að eins:

“Landssjóður greiðir laun og eftirlaun ráðherrans.“

En í 3. gr. laga 17. okt. 1903 um aðra skipun á æðstu umboðsstjórn Íslands segir, að eftirlaun ráðherra skuli ákveðin samkv. hinum alm. eftirlaunalögum. En þess er að gæta, að sú grein á að vera úr lögum numin með þessu frv., sem hér liggur fyrir.

Eg get því ekki séð, að þessi aðal aðfinsla gegn frv., sem eg gat um í byrjun, hafi við minstu rök að styðjast.

Eg hefi heyrt menn vera að stinga saman nefjum um það, sín á milli, að þetta frv. eigi að vera tilraun til þess að útiloka samkeppni embættislausra manna um ráðherrastöðuna. Ekki vil eg væna okkur flutningsmenn frv. þessa, að svo hafi verið í garðinn búið, — en hins vil eg geta til, að ólærðir menn yfir höfuð muni ekki sækja það fast að verða ráðherrar og sízt menn úr framleiðslustéttum landsins. Hingað til hafa ekki farið neinar sögur af því, að þeir gengju með ráðherra í maganum. Þeir, sem að undanförnu og fram að þessu hafa verið haldnir af þeim sjúkleik eru embættismennimir — og þá fyrst og fremst lögfræðingarnir og svo nokkrir aðrir, lærðir, en embættislausir náungar.

Við 2. umr. þessa máls, sagði háttv. þm. Sfjk. (V. G.) að það væri rangt að afnema eftirlaun embættismanna, þar sem nú væri alstaðar verið að gera ráðstafanir til þess, að allir menn fengju eftirlaun. En hér er ólíku saman að jafna. Eftirlaun embættismanna eru ranglát og skapa misrétti milli stétta landsins. Og það er af þessari ástæðu, að almenningur er óánægður með þau og vill fá þau afnumin, eða breytt. Eftirlaun embættismanna eru öll tekin úr hinum almenna sjóði þjóðarinnar — landssjóði — og þau eru veitt, svo að segja, undantekningarlaust öllum embættismönnum, hvort sem þeir hafa verið lengur eða skemur í embætti og hvort sem þeir hafa staðið vel eða illa í stöðu sinni. Ellistyrktar sjóðir almennings, þar sem unnið er að koma þeim á fót, en þar á móti bygðir á framlögum þeirra manna, er góðs eiga af þeim að njóta. Eg skal raunar kannast við að þeir einnig njóta styrks, þessir sjóðir, af fjárhirzlu ríkisins og er það ekki nema sanngjarnt og réttmætt í alla staði.

Það hefir verið sagt, að verði eftirlaun embættismanna afnumin, þá þurfi um leið að hækka laun þeirra, til þess að þeir geti lagt eitthvað upp til elliáranna. Um það geta verið skiftar skoðanir. Eg skal reyndar kannast við það, að t. d. laun lægstlaunuðu kennaranna við mentaskólann muni vera of lág, en eg hygg samt, að yfirleitt líti almenningur svo á, að laun embættismanna séu sæmilega há. Hv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) benti líka fyrir skömmu hér í deildinni á vangann á sér og hv. þm. Sfjk. (V. G.) sem vott þess að þeir hafi nóg að bita og brenna. Og eg held að það mætti benda á vangann á fleirum embættismönnum því til sönnunar, að þeir hafi nóg fyrir sig að leggja. Það er auðvitað ekki nema tilhlýðilegt og verðugt, að þeir líti sómasamlega út, hvað hold og ham snertir. En þegar menn gerast framsettir af ofáti svo engu er líkara en konum komnum á steypirinn, þá er mér nóg boðið, og því heldur sem margir hér á landi hafa ekki einu sinni til hnífs eða skeiðar sem kallað er. Og meðan svo er ástatt þá virðist mér ástæðu-laust að hækka laun embættismanna.