08.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í B-deild Alþingistíðinda. (658)

18. mál, æðsta umboðsstjórn landsins

Bjarni Jónsson:

Eg vildi að eins leyfa mér að gera stutta fyrirspurn til hv. þm. Sfjk. (V. G.). Hann sagði við 2. umr. þessa máls, að stjórnarskráin hefði verið brotin á seinasta þingi með fjárveitingu til embættis nokkurs sem veitt var af þinginu ákveðnum manni. Eg vil gefa honum tækifæri til þess að leiðrétta þessi orð sín nú. Það er fyrirgefanlegt, þar sem hann er danskur embættismaður, þótt hann þekki ekki til embætta hér á landi.