23.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (664)
19. mál, verðtollur
Framsögum. (Lárus H. Bjarnason):
Vegna þess að eg og margir fleiri munu telja það vafasamt, að tillögur milliþinganefndarinnar í fjármálum nái fram að ganga, hefi eg leyft mér að koma fram með þetta frv. Og jafnvel þótt sumar tillögur þeirrar nefndar næðu samþykki alþingis, þá munu þær ekki nægja til að útvega landssjóði þann tekjuauka er nefndin telur þurfa, sízt nú er stærsta frv. nefndarinnar, kolafrumvarpið, er áreiðanlega úr sögunni. Eg var sá sem einna fyrst lagðist á móti kolaeinokunarfrv. nefndarinnar, og áleit eg mér því skylt, að benda á einhverja leið til tekjuauka.
Sú leið sem hér er valin er ekki ný og eg er ekki uppfyndingamaðurinn að henni. Hugmyndin var rædd í milliþinganefndinni frá 1908 og milliþinganefndin frá 1911 hefir að nokkru leyti tekið hana upp, nfl. með tillögunni um svonefndan manufacturtoll. Ef þingið tekur upp það ráð, sem frv. leggur til, að leggja almennt gjald á allar aðfluttar vörur, þá mundi það afla landssjóði mikilla tekna, jafnvel töluvert meiri en eg tel hann þurfa.
Eg hefi stungið upp á 3% gjaldi af verðhæð allra aðfluttra vara. Eftir skýrslum þeim, er liggja fyrir frá árinu 1909, þá hefir innkaupsverð allrar innfluttrar vöru numið um 101/ miljón kr., það ár. Það er leitt, að skýrslur um innkaupsverð aðfluttrar vöru liggja ekki fyrir, nema frá árinu 1909. En þá fyrst var ákveðið, að innkaupsverðið skyldi birt í verzlunarskýrslunum. Skýrslan frá árinu 1910 er víst ekki tilbúin eða óbirt enn og a. m. k. er hún ekki komin í mínar hendur. En þegar þess er gætt, að árið 1909, þegar þó var mjög erfitt um peninga, nam innkaupsverðið svo miklu, þá hygg eg, að búast megi við, að vörumagnið hafl aukist talsvert og muni aukast með ári hverju. Vitaskuld er það ekki annað en ágizkun, en þó hygg eg að gera megi ráð fyrir að innkaupsverð muni innan skamms nema 12 —13 milj. kr. En ef svo verður, og séu 3% lögð á alla innflutta vöru, þá mundi frv. þetta, ef það yrði að lögum, auka tekjur landssjóðs um 360—400 þús. kr. árlega. Til þessa svaraði 720—800 þús. kr. tekjuauki á fjárhagstímabilinu og væri sú upphæð jafnvel hærri en milliþinganefndin í fjárlögum telur óumflýjanlegan um næsta fjárhagstímabil.
Það er og þessari tillögu til mikilla meðmæla, að hún kemur réttlátara niður en tollur á kolum, steinolíu og vefnaðarvöru. Með henni er veizt jafnt að sveitamönnum og þeim, er við sjó búa. Mælikvarðinn, hundraðsgjaldið, er líka hinn sanngjarnasti. Skattgjaldið fer eftir því, hve miklu er eytt af útlendri vöru, og lendir þannig þyngst á þeim, sem kaupa mikið og dýrt, eða með öðrum orðum á efnamönnunum.
Það hefir þótt helzti gallinn á hundraðsgjaldi, að hætt væri við, að innheimta yrði erfið, eða jafnvel lítt möguleg og hefir það einkum verið talið „manufactur“-tolli til foráttu. En eg hygg að innheimtuaðferð sú, er þetta frv. leggur til að höfð verði, tryggi sæmilega góða innheimtu á gjöldunum. Að minsta kosti er verðtollur sem allsherjargjald auðveldari til innheimtu en verðtollur á einstökum vörutegundum. Ef til vill þykja sum ákvæðin nokkuð hörð, t. d. ákvæðin um kyrrsetningu, en eg vona, að hv. þm. séu mér sammála um það, að nauðsynlegt sé að hafa ákvæðin nokkuð ströng á pappírnum, það er ekki hætt við því að ekki verði vikið frá bókstaf laganna í framkvæmdinni. Eg vildi fyrir hvern mun komast hjá því, að stofna til sérstakrar embættisstéttar, tolliðs, og eg er þess fullviss, að 1. þm. Árn. (S. S.) og 1. þm. Rang. (E. J.) eru mér sammála um það, að eigi beri að auka það fríða lið, nema nauður reki til — enda býst eg og við því, að slíkt lið yrði til lítils gagns — gerði litið annað en hirða launin.
Þá vil eg geta þess, að það er ekki meining okkar flutningsmanna, að þetta gjald verði tekið upp sem framtíðargjald. Því er ekki ætlaður lengri aldur en 3 ár. Þar með er ekki sagt, að ekki megi halda því áfram, ef það reynist vel.
Það hefir verið rætt svo mikið um faktúrugjald undanfarin ár, að reynsla á því um tiltekið árabil er út af fyrir sig æskileg, enda mikill gjaldauki sagður nauðsynlegur og ekkert gjald tilnefnt tiltækilegra í svipinn.
Eg sé svo ekki ástæðu til að eyða frekari orðum að frumv. á þessu stigi. Að eins vil eg biðja hv. forseta að athuga, að prentvillur hafa slæðst inn í það, sem þurfa leiðréttingar. Eg býst við að þessari viðleitni til að auka tekjur landsins verði sá sómi sýndur, að nefnd verði látin athuga málið, og vri þá, að eg hygg, æskilegast að því yrði vísað til steinolíunefndarinnar, enda hefir hún á fundi í morgun rætt frumvarpið lítillega.