12.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (680)
19. mál, verðtollur
Ráðherra (H. H.):
Mér þykir þessi tillaga háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th) æði nýstárleg. Eg hefi heyrt talað um það á þessum síðustu tímum, að landssjóðurinn sé að fara á hreppinn, en aldrei hefi eg heyrt talað um það, fyr en nú, að hrepparnir eigi að komast á landssjóðinn.
Í þessu tilfelli verð eg að álita slíka nýbreytni sérstaklega óheppilega. Einn aðalókosturinn á þessum gjöldum, sem hér er um að ræða, er eins og eg hefi tekið fram, einmitt sá, að þau koma svo misjafnt niður á landshlutana, lang mest á kaupstaðina og þá er búa við sjáfarsíðuna. Ef nú á að fara að taka þetta gjald, sem kaupstaðirnir og sjáfarútvegurinn aðallega bera, og skifta því upp milli hreppanna til sveita, þá finst mér skörin vera farin að færast of mjög upp í bekkinn. Sjáfarsíðumenn ættu því ekki að eins að greiða landssjóðsgjöld fyrir landhreppana, heldur líka tillag til sveitargjaldanna þeirra til að hækka hjá þeirn útsvörin. Það virðist mér óþarfa viðbót við misréttið. Enda veitir landssjóðnum sannarlega ekki af þeim gjöldum, sem hann kann að fá af lögum þessum hvort frv. sem verður ofan á.
Eg álít alveg tilgangslaust og óþarft fyrir mig að lýsa afstöðu minni til þessa máls frekar en eg þegar hefi gert, og til einkis að eyða orðum að fjárhagsgyllingum sumra háttv. þm., sem talað hafa. Það eitt vil eg segja háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.), að það er óvarlegt af honum, að láta bera svona mikið á því, að hinar öflugu tilraunir hans til þess að auka tekjur landssjóðs með lotterílögunum, sem hann eignar sér, og og með frv. um factúrutollinn, séu aðallega til þess gerðar að gleðja ráðherrann. Einhver kynni að leggja trúnað á þetta, og því ekki meta að verðleikum umhyggju þá fyrir landi og lýð, sem hann hefir sýnt með sínum alkunna dugnaði í flutningi frumvarpa þessara. Ekki er heldur enn útséð um það, hver ráðherrann verður, sem gleðina hefði af fénu, og skal eg ekki útlista það frekar. En hver sem hann verður, sýnist hættulaust að landssjóðurinn fengi dálítið meiri tekjur en brúka þyrfti í svipinn, því að þingið hefir tök á því, að láta ráðherrann ekki að ósekju sólunda meiru fé, en lög heimla.
Háttv. framsögum. meiri hlutans (P. J.) vildi ekki gera mikið úr erfiðleikunum á tolleftirliti og endurskoðun tollreikninga eftir verðtollsfrv, og nefndi til farmskrána, sem ágætt skilríki. En svo góð sem hún getur verið til þess að framfylgja farmgjaldsfrv., eins gersamlega ónýt er hún til þess að sanna verðmæti þess, er flutst hefir í hinum ýmsu vörucolli, sem farmskrá greinir þyngd eða rúmmál á. Þetta þarf enga frekari skýring, að því er mér virðist. Mér virðist auðsætt, að hvorki mundi tollheimtumaðurinn hafa tök á að vita, hvort hann fær gjald af helmingi þess verðmætis sem innfluzt hefir, né landsstjórnin til þess að hafa eftirlit með því, hvort tollheimtumennirnir skila í landssjóð því, sem þeir innheimta.