12.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í B-deild Alþingistíðinda. (684)

19. mál, verðtollur

Skúli Thoroddsen:

Út af því að hv. þm. S.-Þing. (P. J.) hreyfði því, að við flutnm. brtill. tækjum hana aftur að þessu sinni, og kæmum ekki með hana fyr en við 3. umr., skal eg taka það fram, að við getum ekki orðið við þeim tilmælum hans. Það er hægra að átta sig á málinu, ef atkvæðagreiðsla fer fram nú, og breyta þá til við 3. umr. ef þurfa þykir.

Að því er snertir ummæli hv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) þess efnis, að hér væri ekki hugsað til annars en að tjalda til stutts tíma, lögunum að eins ætlað að gilda í þrjú ár, þá get eg ekki bygt mikið á því, því að komist faktúrutollurinn einu sinni á, býst eg ekki við öðru, en að hann verði fast gjald. Þekkjast og dæmi þess frá fyrri þingum, að svo hefir farið, að tollálögur hafa orðið að föstum gjöldum, þó að til þess hafi ekki verið ætlast í fyrstu. Nægir í því efni að benda á hækkunina á sykur- og tóbaktollinum fyrir fám árum.

Þá kem eg að ræðu hæstv. ráðh. (H. H.). Hann sagði að með tillögunni væri farið fram á það, að setja hreppana á landssjóðinn. En það er misskilningur. Hér er ekki verið að tala um neina fjárveitingu úr landssjóði, heldur á hann einungis að annast innheimtu á gjaldi, sem lögin tiltaka að hrepparnir og sýslurnar eigi að fá.

Hvað það snertir, að gjaldið komi harðast niður á sjávarsíðuna, þá hygg eg það rétt vera, að meira muni notað þar en til sveita af erlendum varningi. (Sigurður Sigurðsson: Það er mikið spursmál.) En þess er að gæta, að einmitt við sjávarsíðuna er og mest fjölmennið, svo að sá hlutinn af tollinum sem sveitar-, bæjar- og sýslufélögum er ætlaður, rynni þá og mest þangað, og kæmi það því í réttan stað. — En teldu menn sjávarsveitirnar engu að síður borga tiltölulega meira, en sveitirnar, og styrkja þær þannig að nokkru leyti, þá má benda á það, að í fiskileysisárum kemur það oft fyrir, að landsveitirnar verða fyrir allmiklum skellum frá sjávarsveitunum. Þá eru menn, sem í góðum árum hafa fluzt að sjónum, sendir hópum saman á hreppa sína, — til landsveitanna.

Hvað það snertir að tillagan sé nýstárleg, þá getur það vel verið; en þó þekti hv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ól.) tilsvarandi löggjöf í Kanada, og svo getur viðar verið. Annars kemur það Alþingi Íslendinga ekkert við, hvort þetta þekkist annarsstaðar eða ekki. Æskilegast væri, að íslenzkt löggjafarvald þyrfti ekki altaf að sækja til annara, en gæti og sjálft fundið upp heppilegar nýjungar, er öðrum gætu orðið að gagni eða enda til fyrirmyndar.

Annars furðar mig stórlega á því, að hæstv. ráðherra (H. H.) skyldi ekki taka tillögunni betur, en hann gerði. En það er líklega af því, að hann þekkir ekki til erfiðleikanna, sem sveitarútsvörin baka mönnum, enda maður, sem vanur er að lifa við föst laun. — Svo sem dæmi upp á það, hvað peningar eru dýrir hér á landi, má minna á það, að til sveita þykir það tilvinnandi, til þess að þurfa eigi að greiða útsvörin í peningum, að selja þurfamanni fæði, húsnæði og alt, er hann þarfnast, fyrir 60—70 kr. um árið, eða þar um.

Eg skal að lokum geta þess, að hvernig sem tillaga okkar fer í þetta sinn, þá er eg viss um, að hún verður vakin upp aftur, og, nær þá fyr eða síðar fram að ganga, enda er hún þess eðlis, að segja má, að hún taki hvern mann í landinu tali. Að öðru leyti er hér og annað að ræða en tilfærslu, — verzlunin látin greiða gjöldin til þess að gera mönnum hægara fyrir. —