14.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í B-deild Alþingistíðinda. (706)
19. mál, verðtollur
Lárus H. Bjarnason:
Eg skal ekki deila við þingmanninn, en að eins geta þess að hann hefir ekki séð það sem stenur letrað á bréfið með feita letrinu leyfi eg mér að eins að skora á háttv. þm. að hann gefi þinginu þetta fylgibréf, svo að það geti fylgt ræðum okkar sem sönnunargagn. Að vorum lögum er hegningarvert að gefa ranga skýrslu um málefni sem varða hið opinbera, hvort heldur um tollheimtu er að ræða eða annað, og svo er það og að allra þjóða lögum, sem eg þekki, enda er auðsjáanlega bent til þess í athgr. á þýzka fylgibréfinu sem eg las upp.