27.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (722)

22. mál, veiði í Drangey

Bjarni Jónsson:

Eg hefi komið fram með samskonar brt. við þetta frv. sem við frv. um samþyktir um mótak; hún fer fram á það, að þeir sem veiðirétt eigi í Drangey, skuli hafa atkvæðisrétt um samþyktina, þótt þeir hafi ekki atkvæðisrétt í sveitamálum. En lögspekingarnir hér í deildinni sjá sennilega sama galla á þessari tillögu og hinni, að ekki sé tekið fram, hvernig fara skuli að ef ófullveðja menn eða ung börn eigi réttinn. Eg fyrir mitt leyti er eigi hræddur við þennan galla. Eg hafði hugsað mér, að þegar svo stæði á, mundi fjárráðamaður fara með atkvæðið fyrir eigandann. En nú ætla eg að taka brt. aftur, svo að lögspekin losnar við ábyrgðina af að greiða atkvæði um hana. Ekki geri eg það þó vegna lögspekinnar, heldur vegna þess að eg hefi nú fengið upplýsingar um að eyjan er almennings eign, þar sem hún er eign sýslufélagsins, og hverfur þá nauðsynin á slíkri breytingu; þegar eg samdi till. var eg ekki viss um hvort eyjan væri einstakra manna eign eða almennings.

En hina tillöguna mun eg bera fram til 3. umr., og getur lögspekin safnað vindi þangað til.