25.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í B-deild Alþingistíðinda. (727)

23. mál, stjórnarskrármálið

Flutn.m. (Bjarni Jónsson):

Eg hafði hugsað mér að Hans Hátign kon­ungurinn og landsstjórnin mundu. telja sér skylt, samkv. stjórnarskránni, að bera þetta frv. fram fyrir þetta auka­þing, sem eingöngu er samankomið vegna þessa máls, og það jafnvel, þótt kon­ungur ætlaði ekki að samþykkja frv. óbreytt. Mér skilst, að þetta hefði verið skylda, því að annars gæti farið svo, að einmitt þetta þing fengi alls ekkert tækifæri til þess að ræða frv. Og eg hygg jafnvel, eftir þeim atburðum, sem hér hafa orðið nú að undanförnu, og eftir orðum hins nýja ráðherra vors áðan, að hér hafi skollið hurð nærri hælum, legið nærri, að enginn tæki frv. upp, svo að það yrði rætt.

Annars skal eg ekki tala margt um þetta né víta þá stjórn, sem nú er að fara frá völdum. Að eins vil eg geta þess, að þetta er einn liður í ástæðunum til þess, að eg ber þetta frv. fram, ásamt háttv. meðflutningsmanni mínum, þm N.-Ísf. (Sk. Th.), að mér þótti það ósvinna, ef það yrði ekki rætt á þessu þingi. En ekki var það þó aðalástæðan.

Aðalástæðurnar eru þær tvær, er nú skulu taldar:

Sú fyrst, að eg mundi enn skoðun al­þjóðar og þingheims í fyrra um það, hve bráða nauðsyn bæri til endurbóta á ýms­um greinum stjórnarskrárinnar, og vilja manna um þær umbætur. Þá var það ljóst orðið, af svörum Dana, að samningaumleitanir við þá voru strandaðar, og þá var næsta nauðsynin að koma fram þeim stjórnarskrárbreytingum, sem ekki mátti án vera, og gera mátti ráð fyrir, að ekki yrðu deiluatriði við Dani. Um þetta kom báðum þingflokkum þá saman, enda varð það að ráði.

Og hin aðalástæða mín var sú, að þessi nauðsyn er enn algerlega óbreytt. Kon­ungkjör þingmanna er jafnóeðlilegt nú sem þá, kosningarréttur til alþingis er bundinn jafnóeðlilegum böndum nú sem þá, og ríkisráðsákvæðið er jafnfjarstætt öllum sanni nú sem þá.

Eg vil biðja háttv. þm. að taka eftir því, að eg ber engan veginn þetta frv. upp til málamynda, heldur hefi eg þeg­ar gert mér ákveðna hugmynd um það, hvernig þingið eigi með það að fara, og eg skal geta þess nú þegar, að eg er enn á sömu skoðun, sem eg og allr aðrir höfðu á síðasta þingi, sem sé þeirri, að þetta mál eigi að ganga fram sem allra fyrst. En þá er að athuga það, hvort betra sé að samþykkja það óbreytt, eða gera á því einstöku breytingar og leiða það svo til lykta á næsta reglulega al­þingi.

Eg skal nú geta þess, að frá mínu sjónarmiði eru talsverðir gallar á frv., eins og það er, og kunnugt er það hv. þm., að eg barðist móti ýmsum greinum þess á síðasta þingi, en var með öðrum tillögum ásamt öðrum hv. þm., sem nú á ekki sæti hér. T. d. vildi eg helzt hafa óskift þing og stuttan kjörtíma, og þar næst skifti á alþjóðarkjöri og kon­ungkjöri, og að kjördæmaskipun héld­ist annars óbreytt, svo að ekki yrði óþarfa rask, þar eð þetta átti eingöngu að vera bráðabyrgðabreyting. Illþolandi þótti mér og fyrirkomulag efri deildar. t. d. 10 ára tíminn og þaðan af verra, að þingrof nái ekki til þessara tímenn­inga. Enn fremur að kosningarrétturinn skuli vera bundinn við 25 ára aldur í stað lögaldurs, sem ætti að vera trygg­ing fyrir nægum þroska kjósandans. En verra er þó að hafa tvennan kosn­ingarrétt, annan til efri en hinn til neðri deildar. Þessir gallar þykja mér á vera, og fleiri, sem eg hirði eigi að telja, en þrátt fyrir það eru og margir kostir á því, sem eru svo mikils virði, að mér væri nauðugt að sjá það, ef frv. næði eigi fram að ganga, svo að þær réttar­bætur kæmust eigi á.

Fjölgun ráðherra er t. d. mikil réttar­bót, þó því að eins, að ráðherraeftirlaun séu afnumin, því að annars má gjald­þol landsmanna ekki við þeirri breyt­ingu, og mundu menn þá jafnvel skirr­ast við að skifta um stjórn, þó nauð­synlegt væri. En ef þetta frumv. yrði samþykt, þá yrði stjórnarskráin ekki lengur þröskuldur í vegi fyrir því, að taka mætti eftirlaun af þeim og öðrum með einföldum lögum.

Annar kostur er sá, að landsvist er gerð að skilyrði fyrir kjörgengi, svo sem sjálfsagt er. Það er ekki rétt sem sagt hefir verið, að þetta ákvæði sé sprottið af andróðri gegn einstökum manni, hv. þm. Sfjk. (V. G.), heldur af hinu, að embættismaður annars ríkis á ekki að geta setið á þingi voru, hversu góður þingmaður sem hann er, og hversu vand­fylt sem sæti hans kann að vera. Því að þjóðernið eitt ætti ekki að gefa dönsk­um embættismanni eða þegni frekari rétt til slíks, en t. d. löndum vorum í Vesturheimi, og er þeim þó að lögum meinuð þingseta hér. En standi við það, sem nú eru lög um þetta, þá gæti hver embættismaður í Danmörku, sem kann að tala og rita íslenzku, orðið þm. hér. T. d. gætum vér þá ekki eingöngu átt von á því, eftir næstu kosningar, að hv. þm. Sfjk. yrði endurkosinn, heldur og við hlið hans gæti setið Knútur Berlín, sem fulltrúi Suður-Múlasýslu. (Guðlaug­ur Guðmundsson: Það væri ekkert á móti því!). Það getur verið að hv. þm. Ak. (G. G.) hefði ekkert á móti því, en eg fer nú með mína eigin skraddar­þanka um málið og get ekki hugsað fyrir allra sann.

Þá er rýmkun kosningarréttarins svo mikil réttarbót, að hún ein mundi nægja til þess, að menn rendu niður mörgum af göllum frv. með henni.

Eg skil ekki, hvernig réttlætiskend manna þolir það, að sá réttur sé bund­inn við krónu eða kyn, því að þeir, sem krónuna eiga, eru ekki færari til þess að kjósa en hinir, upp og niður. Og um kynferðið er það að segja, að það er nú öllum ljóst, að hér er um gamlar ófrelsisleifar að ræða, og tel eg það ósæmilegt svo mentuðum mönnum, sem Íslendingar eru, að sýna þann hroka, að álíta sig sjálfkjörna til þessa réttar, en vilja gera mæður sínar að hornkerl­ingum.

Önnur mikilsverð rýmkun á kosning­arréttinum er afnám konungkjörs, sem reyndar er ekki annað en ráðherrakjör. Það þykir ekki gott, að menn séu tvö­faldir, en verra er þó að þeir séu sjö­faldir, en það er ráðherrann eftir nú­gildandi stj.skrá. Og hann er það ekki einungis meðan hann situr í ráðherra­sessi, heldur getur hann haldið áfram að vera það eftir að ráðherraskifti verða, ef sá tími fer ekki saman við endi kjör­tímabilsins. Þetta vildi til þegar nýi ráðherrann, sem nú er, valdi síðast kgk. þm. Þá gerði hann það þvert ofan í vilja og skoðanir þáverandi meiri hluta og ráðherra, sem við tók. Og þótt sá ráðherra, sem nú lét af stjórn hegðaði sér öðru vísi, þá er engin trygging fyr­ir því, að svo verði jafnan. Það er og öllum ljóst, hve sjálfsögð þessi breyting er, og hve mikla áherzlu allur landslýð­ur hefir á það lagt, að kgk. sveitin hverfi. Þá er enn eftir einn kostur þessa frv., er eg fyrir mitt leyti met nálega mest af öllum. En hann er sá, að ef samþyktir yrðu samningar um samband Íslands við annað ríki, þá verði þeir bornir undir alþjóðaratkvæði með leyni­legri atkv.gr. Eg sé ekki, hvernig menn ættu að fara að því, að verja það fyrir samvizku sinni að fresta því, að þetta ákvæði komist inn í stjórnarskrána. Að minsta kosti vil eg ekki eiga framtíð landsins undir trú á einstakan mann eða flokk og orðheldni þeirra. Og fari það nú t. d. fram, sem eg heyrði hæstv. ráð­herra, sem nú er að verða, æskja eftir, nefnilega að tekið verði upp hér á þingi uppkastið sæla frá 1908, eða annað það­an af verra og samþykt, undir hverju er það þá komið hvort það ekki verður gert að lögum, þegar í haust, öðru en eingöngu orðheldni þessa manns og flokks hans. Og þótt hann væri allra manna orðheldnastur, þá væri það ekki nóg trygging, því að hann gæti dáið og annar komið í staðinn, sem engu hefir lofað, og er því við ekkert bundinn. Eg skil ekki hví menn gerast svo djarfir, að taka upp sambandsmálið af nýju án þess að þetta ákvæði sé áður komið inn í stjórnarskrána. Annars var þetta svo lifandi í meðvitund manna á síðasta þingi, að eg skil ekki í því, að menn séu svo sljóvir, að á það þurfi að minna.

Þá má ekki gleyma ríkisráðsákvæð­inu. Það er alkunna, að alt frá því er það var samþykt hafa allir Íslendingar verði á einu máli um það, að það væri eingöngu íslenzkt mál, og gæti ekki orðið deilumál við Dani. Þetta liggur líka í augum uppi, því að hvorki felst í því viðurkenning á stöðulögunum, þar sem ráðherra, sem þá varð og nú tek­ur við aftur; og flokur hans lýsti yfir því einmitt á því þingi, að þeir skildu það eigi svo, heldur sem sérmál, — né heldur kom það fram sem samningur sem sjá má á, því, að þar var ekki við neinn samningsaðilja um að eiga, enda sýna áður nefndar yfirlýsingar þm. að þeir þóttust ekki vera að gera neinn samning, — þær hefðu verið alger hugs­unarvilla, ef svo hefði verið. Ekki ræð­ur íslenzkt löggjafarvald heldur yfir því hverjir í þeirri samkundu (danska rík­isráðinu) sitja. Ákvæðið er því ekkert annað en meinloka, sem á að hverfa sem allra fyrst. Og samkvæmt þessu öllu, sem nú er talið, trúi eg því ekki, að nokkur ætti að láta sér það í augu vaxa, að samþykkja þetta frv. óbreytt, svo miklar umbætur veitir það frá því, sem nú er. Eg trúi ekki heldur öðru, en að nýi ráðherrann fái þetta frumv. samþykt og staðfest í haust, því að von­andi er að hann sé konungi velþóknan­legur, og að hann skirrist við að reka þann mann úr ráðherrasæti, er hann hefir nýkjörið þangað, og það því frem­ur, sem eg hefi heyrt það frá skilgóð­um manni, að hann hafi ekki veitt því máli skilyrðislaus afsvör, heldur þvert á móti sagt að hann þyrfti að kynna sér betur Íslandsmál, og gæti afleiðingin af því vel orðið sú, að hann sæi þá hve tví­mælalaust þetta er íslenzk sérmál og neitaði því ekki lengur samþykkis. Hitt gæti verið hættuspil, að láta frv. rek­ast milli þinga og flokka nokkur ár enn, og það er ekki sagt, að menn yrðu ánægðari með þær breytingar, sem þá kynnu að verða á því gerðar, og lík­lega yrðu til verra eins. — En að því frágengnu, að frv. fáist samþykt óbreytt, vildi eg óska að það yrði afgreitt héð­an í einhverju formi, heldur en ekkert, til þess að ekki detti niður viðleitnin í þá átt að gera nauðsynlegar umbætur á stjórnarskránni, án þess þó að deila við hina þjóðina, sem vér nú erum í sambandi við.

Ein ástæða til frestunar væri hugs­anleg, sú að bráðlega gengi fram samn­ingar um sambandsmálið. En mér er spurn, getur þess verið nokkur von? Það hygg eg að örvænt sé um það. Þótt bræðingurinn, sem svo er nefndur, sé nú talinn lostætur meðal þingmanna, þá hygg eg að kjósendum bragðist hann miður. »Engin etur bræðinginn brauð­lausan«, segir máltækið, en skjótt mundi verða brauðþurð, ef allur almenningur ætti að fá með honum. Af þessari einni ástæðu, tregðu kjósanda, sem öllum er vituð, mun ekkert samningsfrv. koma fram á þessu þingi. Kjósendatregðan vituð, af því að enn er óbreyttur vilji kjósanda frá 1908, en var sá að gera aldrei samning nema hvor aðili um sig mætti segja honum upp. Uppsögnin var jafnan aðalatriðið og annað bar ekki á milli flokka 1909. Hafa því þeir menn, sem þá voru í meiri hluta, en ganga nú frá þessu atriði, lagst á sveif með hinum fyrri mótstöðumönnum sínum. Auk þess hétu menn því, er síðast var kosið, að hreyfa ekki því máli: — En þótt bræðingsmenn væri svo djarfir, að þeir þyrði að bjóða umbjóðöndum sínum kjósöndum, þessa fæðu, þá munu þeir ekki gína yfir. Og þótt þeir yrði svo gleymnir á loforð sín, að þeir vildu hafa málið fram nú, og þótt þeir geri föst samtök (sumum þykir þó þau fastatök eiga að vera lausatök), þá mun mál þeirra engan framgang hafa, heldur munu þeir fá enn verri bakskell, sem svo er nefndur, en þeir fengu 1908. Samningar munu því eigi komast á fyr en þessir menn snúast yfir á mína stefnu, þ. e. konungssamband, það eina sam­band sem getur rúmað fullveldi Íslands, og Danir viðurkenna það. Raunar eru menn orðnir hringförulir á þessum síð­ustu og verstu dögum, en þó munu þeir trauðla snúast í svip til hins rétta mál­staðar vors. Því að menn eru snúð­harðari til vitleysu en til vits, svo sem ráða má af orðinu hringavitleysu.

Ekki mun heldur friðarspjall hins nýja ráðherra bæta hér úr skák eða flýta fyrir, og munu honum illa bregð­ast þær friðarvonir, sem hann byggir á hinum föstu samtökum, er hann lýsti.

Eg er sannfærður um, að allir vita það og viðurkenna, að slíkar tilraunir geta ekki leitt til friðar í landinu. Það er einmitt það versta ófriðarefni, ef á að fara að reyna að hnekkja þeim þjóð­arvilja, sem kom svo ótvírætt í ljós við kosningarnar 1908, nú eftir 3–4 ár. Og þess er eg fullviss, að sé úlfúðin og ófriðurinn innanlands þess valdandi, að lánstraust landsins er ekki eins mikið og æskilegt væri, þá batnar það ekki við slíkar tilraunir — og ef deilur okk­ar við Dani sem svo eru kallaðar, en er í raun og veru ekki annað en kurt­eist samtal; eru hins sama valdandi, þá er það víst, að þær batna heldur ekki ef á að fara að gera tilraun til að hafa yfirlýstan vilja þjóðarinnar að engu, heldur mun slík tilraun miklu fremur verða upphaf að deilu við Dani. En annars hygg eg að hægt sé að finna á­stæðurnar fyrir því, hve lánstraustið er lítið á ýmsu öðru en þessu.

Eg get nú ekki eftir þessu öllu séð annað en sá sé einn kostur Alþingis að ræða þetta mál til úrslita og samþykkja það — helst óbreytt — eða þá með lít­ilsverðum breytingum, sem ekki mega ná til neinna aðalatriða, t. d. ríkisráðssetunnar — og eg hygg að flestir háttv. þm. séu mér sammála um þetta. Annað væri óliklegt, eftir umtali þeirra á síð­asta þingi.

En þótt einhverjir, móti von minni, kunni að vera á móti þessu, þá er eg samt fullviss um það, að allir séu mér sammála í því að vísa málinu til 2. umr. og kjósa síðan 7 manna nefnd til að at­huga það. Og geri eg það að tillögu minni.