21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 322 í B-deild Alþingistíðinda. (731)

23. mál, stjórnarskrármálið

Benedikt Sveinsson:

Eg ætla ekki að ræða þetta mál nú. En hart þykir mér að þola þá aðferð sem höfð er í þessu máli. Það er dregið þangað til kl. 8 að kveldi að ræða þetta mál, sem þingið er komið saman til að fjalla um. Nú eru menn orðnir dauðuppgefnir eftir alt þrefið og þjarkið í dag og þó á nú að hespa málið af þegar á einu síðkveldi. Hefði þó ekki veitt af, að menn væru óþreyttir þegar svo mikils­vert mál liggur fyrir. Nú eru mörg smá mál eftir á dagskrá og væri nær að taka þau fyrir en fresta þessu til morguns. Geri eg það að tillögu minni að málinu verði frestað og tekið fremst á dagskrá einhvern næsta daginn.