21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í B-deild Alþingistíðinda. (733)

23. mál, stjórnarskrármálið

Framögum. minsta hl. (Skúli Thoroddsen):

Eg hafði vænst þess, að hv. frsm. miðhl. (V. G.) mundi tala á undan mér, og því bað eg ekki fyr um orðið.

Eins og kunnugt er, er þetta auka­þing til þess samankallað, að leiða til lykta stj.skrárfrv. síðasta þings. Þegar árið 1907 var mönnum orðið það ljóst, að breyta þyrfti stjórnarskránni, og kom báðum flokkum þingsins saman um það, að nauðsyn væri á því, að það yrði sem fyrst gert. Síðan hefir það mál ætíð verið meira og minna vakandi, og loks fór svo á þingi 1911, að stj.akrár­breyting var samþ. Þótt menn greindi á um einstök atriði, þá sættust þó báðir flokkar á að afgreiða málið, og dró það til þess, að halda varð þetta aukaþing. En þá varð það tíðinda þegar í þing­byrjun, að málið var ekki lagt fyrir þingið af hálfu stjórnarinnar, og þess vegna tókum við, eg og hv. þm. Dal. (B. J.) frv. upp og fluttum það í okkar nafni. Það var sett í nefnd, og var eg einn í henni. Eg get nú ekki borið henni annan vitniaburð en þann, að störf hennar hafa gengið seint og orðið að lokum verri en engin. Hún hefir þríklofnað, og leggur mesti hl. það til, að málinu verði eytt að þessu sinni, með því að sþ. þingsál.till. um það, en miðhl. vill fara líka leið, dagskrárleið­ina, með dálítið annari rökstuðningu, og loks legg eg til að frv. verði samþ. óbreytt.

Það tafði fyrir störfum nefndarinnar, að sumir vildu ekkert gera í þessu máli fyr en séð væru örlög bræðingsins á þinginu, með því að réttast væri að hreyfa því í sambandi við sambands­málið, en fyrri ekki, ef von væri nokk­urra framkvæmda í því máli. En þegar nú er að því gáð, hvað þetta þýðir fyrir stj.skrárfrv., þá er það sama sem að draga það um ófyrirsjáanlegan tíma.

Setjum nú svo, að bræðingsmenn kæmu sér niður á eitthvað, sem þeir fengi Dani til að ganga inn á, og sem leiddi til þess, að sambandslagafrv. yrði sþ. á næsta þingi, þá yrði það lagt fyrir þjóð­ina við nýjar kosningar, og þá yrði í bezta falli, ef þjóðin féllist á það frv., stj.skrárbreyting sþ. 1914 og leidd til lykta 1915, því að eg geri ráð fyrir að á næsta þingi verði ekki lagt út í slíkt, á meðan enginn veit hvernig þjóðin muni snúast við samninga-tilraununum. Í sömu átt virðist það og benda, að mesti hl. er nú að snúast frá þingsál.­till.-leiðinni og yfir á dagskrárleiðina, eins og miðhl., því að í þingsál.till. stóð áskorun til stjórnarinnar að leggja mál­ið fyrir næsta þing, ef von væri um framgang sambandsmálsins, en í dag­skránni er fallið frá því, að það skuli gert á næsta þingi. Með þessu er mál­inu þannig teflt í algerða óvissu, því að hvernig þjóðin kann að snúast við sambandsmálinu, getur enginn sagt. Nú hefir verið deyfð yfir því máli víðast á þingmálafundum, en hún mun koma mest af því, að menn þykjast vita það, og treysta því, að því máli verði ekki ráðið til lykta án þess að fyrst fari fram um það nýjar kosningar, enda kom það þjóðinni á óvart, að stj.skrár­málið mundi verða sett í samband við það mál nú, þar sem mönnum hafði skilist svo á flestum frambjóðendum úr Heimastjórnarflokknum, að það ætti ekki að liggja fyrir, og Sjálfst.menn buðu sig fram upp á sömu stefnuskrá og áður, svo að frá þeirra hálfu kom ekki til mála að fara neitt að ýfa það mál upp.

Bræðingurinn er verk þeirra manna, sem sumir voru með stefnuskránni, sem Sjálfstæðismenn fylgdu á þingunum 1909 og 1911, en hinir létu sem þeir ætluðu ekkert við sambandsmálið að eiga, og þetta, að láta nú málið bíða, er sannarlega ekki gert vegna kjósenda. Að vísu er það eðlilegt, ef sambands­lög kæmust á, að þá verði stj.skráin umsköpuð um leið, en þótt þetta frv. væri nú samþ. og til lykta leitt, þá fæ eg ekki séð að menn þurfi að telja á sig það ómak, að breyta stj.skránni aftur, einkum þar sem það yrði þá gert í sambandi við sambandsmálið, sem kostar nýjar kosningar hvort sem er, enda eru þær nú ekki orðnar svo erfiðar, síðan farið er að há þær í hverjum hreppi. Þess vegna getur sambands­málið ekki verið næg ástæða til þess að eyða þessu frv., þótt það sé látið í veðri vaka, heldur er hitt, að hv. meiri hl. er svo íhaldssamur, að hann sér eftir kosningarréttinum, sem þar er ætlaður konum og vinnuhjúum o. s. frv. Hann ber núverandi kjósendur svo mjög fyrir brjósti, að hann má ekki til þess hugsa, að fleiri verði jafn réttháir þeim.

Nú held eg að hver maður verði að játa með sér, að kvenfólkinu og, þeim öðrum, sem hér er um að ræða, sé gerð­ur óréttur, eins og nú er, og það batnar ekki, þótt því sé haldið lengur áfram, heldur versnar, svo að frá því sjónar­miði er þjóðinni ekki heldur unnið þarft verk. Tilfinningin fyrir þessum órétti er að verða æ ríkari, og eins og menn vita, hafa margsinnis heyrst raddir um þetta frá kvenfólkinu. Vinnuhjúin eru ekki eins vel vöknuð til meðvitundar um þetta ennþá, en það er ekki fallegra, að menn séu rændir rétti fyrir það, þótt þeim sé ekki sjálfum ljóst að þeir eigi þann rétt. Það er einmitt ennþá ljótara. Það er eins og eg hefi sagt, það er ekki sambandsmálið sem veldur, heldur liggur hér alt annað bak við.

Því hefir verið hreyft, að vænta mætti fyrirstöðu frá hálfu Hans Hátignar kon­ungs vors á því, að þetta frv. nái staðfest­ingu, vegna burtfellingar ríkisráðsákvæð­isins, en eg þykist í nefndaráliti mínu hafa fært ítarleg rök að því, að ekki þurfi að óttast það, ef málinu er haldið fram með alvöru og frv. samþykt aftur.

Eg hygg að ekki þurfi annað en að benda konungi á það, sem Danir hafa sjálfir sagt, bæði ístöðulögunum og stjórnarskránni, þar sem þeir hafa við­urkent að hér sé um íslenzkt sérmál að ræða, en það er það ekki í reynd­inni, svo lengi sem ráðh. vor á að vera bundinn við að bera upp mál vor fyrlr konungi í ríkisráði Dana, eða meðan Danir yfirleitt hafa nokkurt eftirlit með því, hvernig það er gert. Og auk þess, sem rýmkun sú á kosningarréttinum, sem eg gat um áðan, þolir enga bið, þá er og hið sama að segja um afnám konungkj. þm. og fleiri réttarbætur, sem þetta stj.skrárfrv. hefir í sér fólgnar. Þess utan fer illa á því, að þingið kasti frá sér því verki, sem það var kallað saman til að vinna.

Eg hefi í nefndarál. gert svo ítarlega grein fyrir því, sem mælir með því að frv. verði samþ., að eg álít óþarft að endurtaka það hér, enda mun hvort sem er ekki tjá að fjölyrða um það, þar sem örlög þess munu fyrir fram vera ákveðin.

Það er í þágu hv. meiri hl. að þetta mál nái ekki fram að ganga, og síðan hinn nýi bræðingsflokkur hófst, er nú sumum mönnum svo vikið, — eins og bezt má sjá á Ísafold — að þeir hafa fyrirlitningu og viðbjóð á því, sem þeir hafa barist fyrir og álitið rétt til skamms tíma, og sem er rétt enn.

Eg legg það til, samkvæmt því, sem eg hefi sagt, bæði hér og í nefndarál. mínu, að frv. verði samþ. óbreytt.