23.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í B-deild Alþingistíðinda. (771)

30. mál, mótak

Flutn.m. (Sigurður Sigurðsson):

Ástæðan til þess að þetta frv. er komið fram og flutt hér, er sú, að stjórnarráðinu barst á sínum tíma málaleitun frá sýslunefnd Borgarfjarðasýslu um að gera tilraun til ráðstafana gegn skemdum á mólandi, er geta hlotist af mótaki.

Stjórnarráðið vísaði þessari málaleitun til Búnaðarfélagsins, og hefir Búnaðarfélagið búið til þetta frv. í tilefni af því. Félaginu gat ekki hugsast annað ráð vænna en að heimila sýslunefndum með lögum að gera ráðstafanir þessu viðvíkjandi. Dylst mér ekki að þetta gæti komið að góðu liði, og mundu margir, þar á meðal Borgfirðingar, er fyrst hreyfðu þessu, eflaust nota sér slíka heimild til samþyktar, er fengin eru lög þar að lútandi.

Skal eg svo ekki eyða fleiri orðum um málið en legg til að því verði vísað til 2. umr. og síðan til nefndar þeirrar er kosin var í gær, um veiði í Drangey.