17.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í B-deild Alþingistíðinda. (782)
30. mál, mótak
Framsögum. (Ólafur Briem):
Þetta frv. hefir komið frá efri deild, og voru þar gerðar á því tvær breytingar og eru þær í framhaldsáliti nefndarinnar á þgskj. 272. Báðar breytingarnar hefir nefndin aðhylst og álitið þær fremur til bóta. Vonar hún að frv. verði samþ. eins og það liggur nú fyrir.