03.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í B-deild Alþingistíðinda. (807)

36. mál, sala á eign Garðakirkju

Bjarni Jónsson:

Eftir því sem enn er komið fram í þessu máli, þá er eg ekki viðbúinn að greiða atkvæði sökum ókunnugleika. Uppdráttur sá, sem fyrir mér liggur þykir mér óljós. Eg sé hér ýms nöfn, sem sýnast vera bæjanöfn. Þó hefir engin upplýsing um það komið, hvort þær jarðir séu bygðar eður eigi. Hitt veit og enginn, hvort eða hve mikið af landi þessu er beitiland. Enginn veit heldur hversu stór landspilda það er, sem menn vilja nú að bærinn nái kaupum á. Mætti þó ekki minna vera en að flutningsm. léti þingm. slíkar upplýsingar í té. Er hætt við að menn vilji þá heldur greiða atkvæði á móti, en leyfa það, sem þeir vita ekki um til neinnar hlítar.