20.08.1912
Efri deild: 29. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (81)
10. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Jósef Björnsson:
Jeg ætla fyrst að byrja á því, að háttv. framsögum. taldi það meðmæli með Vestmannaeyjasímanum sem fyrsta flokks síma, að með því fengist 2000 kr. til annars síma. En þegar litið er á nefndarálitið, þá kostar það landssjóð 4.000 kr.; svo jeg skil ekki í því, að landssjóður græði á því, að fá 2.000 kr. fyrir 4.000 kr. Góð verzlun getur það ekki kallast, þótt svo liti út, sem háttv. framsögum. skoði það svo.
Jeg er eins og háttv. þingm. Strandam. á því, að það eigi að byggjast á notkun Siglufjarðarsímans, hvort taka skuli þann síma inn í 1. flokk. En þegar um notin er að ræða, er á það tvent að líta, hve margir nota símann, og hve miklar tekjur hann gefur. Þetta stendur vitanlega nokkuð í sambandi hvað við annað, þótt ekki falli það saman að öllu leyti.
Þótt síminn sje menningarmeðal, má ekki gleyma því, að hann er fyrirtæki, sem á að gefa vexti, vera sem gróðavænlegast, og frá fjármálasjónarsmiði landssjóðs er það aðalatriðið, að fá tekjur af símanum. Að því leyti, sem síminn þannig er gróðafyrirtæki, þá má gera ráð fyrir, að kaupstaðirnir gangi fyrir með 1. flokks línur. Í kaupstöðunum er fólkið margt, síminn mikið notaður og tekjurnar miklar. En það má eiganda símans standa á sama, hvort peningarnir koma frá útlendingum eða öðrum, og ætíð er töluvert af tekjunum í kaupstöðunum frá útlendingum.
Þá skal jeg minnast á það, að mjer skildist svo sem þingm. Strandam. benti til mín, að jeg vildi láta starfsræksluna; á öllum stöðvum á þeim línum, sem teljast til 1. flokks, vera kostaða af landssjóði. Það sagði jeg ekki, enda getur slíkt ekki komið til mála, fyr en þá að allar stöðvar eru kostaðar af fje símans.
Jeg ætla mjer ekki að mæla á móti br.till. háttv. þingm. Strandam. nje öðrum þeim tillögum, sem fara fram á að taka línur í 3. flokk, þótt litlar líkur sjeu til, að þær verði bygðar fyrst um sinn. Línurnar, sem nefndar eru í þeim flokki, eru teknar sem dæmi, og sjálfsagt verða margar fleiri línur bygðar, en þar eru nefndar. Hefði jeg litið svo á, að það hefði nokkra þýðingu í bráðina, þá hefði jeg haft ástæðu til að koma með br.till. um línu fram Skagafjörð frá Sauðárkróki, því hjeraðið er stórt og fjölment, og vafalaust verður lína lögð þessa leið áður en mjög langir tímar líða.
En hvað það snertir hjá háttv. þingm., að sumar sveitir hefðu ógagn af því, að stöðvar væru í nágrannasveitunum, þá get jeg ekki skilið, á hverju sú hugsun er bygð. Að lokum skal jeg taka það fram, að mjer er eins farið og þingm. Strandam., að jeg ætla ekki í nein hrossakaup í þessum efnum, enda er jeg ekki hrifinn af hrossakaupaaðferðinni, hvar sem hún er notuð.