24.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í B-deild Alþingistíðinda. (839)

38. mál, skipun læknishéraða (Hnappdælahérað)

Bjarni Jónsson:

Eg skal leyfa mér að styðja nefndarkosningu. Eg hefi látið útbýta frv., sem fer í svipaða átt og býst við að von sé fleiri slíkra frv. Leyfi eg mér að stinga upp á 5 manna nefnd, sem öll þessháttar frv. verði látin ganga til.