20.08.1912
Efri deild: 29. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í B-deild Alþingistíðinda. (84)

10. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Framsögumaður. Einar Jónsson:

Jeg ætla ekki að halda langa ræðu. Menn hafa þegar skýrt og rætt þær breyt.till., sem fram hafa komið, svo háttv. deild getur metið þær, og hve rjettmætar þær eru.

Háttv. þingm. Skgf. talar um Siglufjarðarsímann, og tók þá aukastöðvarnar með og sagði, að tekjurnar af línunni væri 14.000. — Lína sú, sem við leggjum til að fari í 1. flokk, er frá Ölvesárbrú til Vestmannaeyja, og það eru einnig aukastöðvar á þeirri línu, og mun óhætt, að telja tekjurnar af þeim álíka og af aukastöðvunum á Siglufjarðarlínunni. Jeg ætla ekki að fara að rekja það, sem háttv. þingm. talaði um Siglufjarðar og Vestmannaeyjasímann; að eins taka það upp aftur sem aðalástæðu, að Vestmannaeyjasíminn hefur meiri almenna þýðingu. Þar eru skipaferðir alt árið um kring, og þar er mikið um fiskiskip og fiskiútveg mikinn tíma árs. Því kom nefndin með þessa breytingartill. Annars er mjer ekkert fast í hendi með hana. Og fari svo, að hún verði til þess, að fleiri breytingartill. komi, sem valdi því, að frumv. falli, þá væri eins gott að sleppa henni.

En það var eitt, sem jeg tók ekki fram áðan, er studdi að því, að við komum með þessa breytingartillögu; það var, að við álitum þetta flýta fyrir símanum til Víkur, sem við álitum mjög nauðsynlegan, þar eð Vestmannaeyingar ætla að greiða til hans 1—2 þús. kr., ef lína þeirra kemst í 1. flokk, eins og símskeyti það sýnir, sem jeg hef í höndum. — Ef til þess kæmi, að greiða Rangárvallasýslu aftur upphæð þá, sem hún hefur lagt til símans að Garðsauka, þá mætti gera það að skilyrði, að þeir legðu svo sem 2000 kr. til símans til Víkur. En ef allt situr við það, sem er, þá býst jeg við, að þeir Rángvellingar leggi lítið til símans til Víkur. Jeg vildi benda á þetta atriði, þar sem jeg tel það sjerstaklega mæla með því, að línan úr landi til Vestmannaeyja sje sett í 1. flokk.

Þá sagði og þingm. Skagfirðinga, að hann teldi ekki sjálfsagt, að það fje, sem sýslurnar hefðu lagt til símanna, yrði endurgreitt, þegar línurnar eru settar í 1. flokk. Víst er það engin skylda. En bænir um það munu koma bráðlega fyrir þingið, ef svo færi. En jeg veit auðvitað ekki, hvað þingið samþykti um það efni. Það væri ekki skuldbundið til að skila aftur útlögðu fje, en sanngjarnt mundu beiðendur telja það.

Nefndin leggur eindregið til, að frumv. verði samþykt. Og símastjórinn, sem mikinn áhuga hefur á þessu máli, hann óskar mjög eftir því, að frumv. verði sem minst breytt nú, svo það komist í gegn um þingið. Jeg geri ráð fyrir, að viðaukar og breytingar komi við lög þessi á næstu þingum. Þá getur einnig ýmislegt litið öðruvísi út, og hægra orðið um ýmsar breytingar.

En símastjórinn álítur gott að hafa þetta frumv. eins og það nú er, sem undirstöðu til að byggja á. Honum er það áhugamál, að síminn komi sem víðast. Nefndin vill það einnig, og hún væri fús til þess, að skylda landssjóðinn til þess, að taka lán til þess, að leggja nauðsynlegar símalínur, ef fjárhagur landsins væri ekki eins bágur og hann er. Fyrir 1915 eru engin tök á að leggja fleiri línur, en þær, sem óbygðar eru, og taldar eru í 2. og 3. gr. Þær eiga að sitja fyrir öðrum. Því er góður tími til stefnu að ákveða, hvernig framhaldið skuli vera.

Háttv. þingm. Árn. sagði, að nefndin mundi vilja láta háttv. Nd. ráða.

En þessu er ekki svo varið, að hún bindi sig neitt um of við það. En nefndin vildi fara sem mest eftir tillögu símastjórans í málinu, og hann gerir ráð fyrir breytingum síðar.

Jeg verð því eindregið að leggja það til, að frumv. verði samþykt, og að menn verði ekki á móti því, þótt þeir fái ekki sínar breytingartill. samþyktar. Því síðar mun verða hægt úr því að bæta, áður en nokkru er spilt.