25.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (861)
115. mál, styrktarsjóður barnakennara
Jón Magnússon:
Mér dettur ekki í hug að rengja háttv. flutningsm. (L. H. B.) um, að þessar óskir um breytingar á lögunum séu komnar frá Reykjavíkurkennurunum. Þeir eru að sumu leyti ver settir og hafa meiri líkur til að fá styrk úr sjóðum, en kennarar annarsstaðar á landinu. En kennarafélagið er fyrir kennara út um alt land, en ekki eingöngu fyrir kennara í Rvk. Þessar breytingar eru að eins eftir ósk þeirra. Mér finst eðlilegt að kennarar út um land fengju eitthvað að segja.