06.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (864)
115. mál, styrktarsjóður barnakennara
Framsögum. (Lárus H. Bjarnason):
Eg hefi í rauninni ekkert að segja umfram það, sem stendur í nefndarálitinu á þgskj. 135.
Eins og 3. gr. er nú breytt, er ekki farið fram á annað með henni, en að ekkja og börn látins kennara megi, ef ástæða þykir til, verða þess styrks aðnjótandi, er hann hefði fengið ef hann hefði lifað. Skemmra en þetta varð ekki farið. Því hefir verið borið við af einum hv. þm., að það væri vafasamt hvernig kennarafélagið liti á þetta mál. Formaður kennarafélagsins, Jón Þórarinsson var á nefndarfundi með okkur og tjáði sig þessu öllu fyllilega samþykkan, og hér hefi eg í höndunum meðmæli frá fjórum stjórnendum félagsins auk hans. Skal eg, með leyfi forseta, lesa þau upp.
„Vér undirritaðir stjórnendur hins íslenzka kennarafélags leyfum oss hér með að óska þess, að hið háa Alþing vildi samþykkja frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 18, 9. Júlí 1909 um styrktarsjóð handa barnakennurum, það er nú liggur fyrir þinginu.“
Þess skal getið, að tveir af stjórnendum félagsins eru fjarverandi ásamt formanni.
Reykjavík 3. ágúst 1912.
Hallgrímur Jónsson. Sigurður Jónsson.
Jón Jónasson. Pálmi Pálsson.
Ennfremur hefi eg hér meðmæli frá stjórn Kennarafélags Reykjavíkur.
Það er sérstakt félag, einungis fyrir kennara hér í bænum. Eru þau undirskrifuð af fjórum stjórnendum af fimm. Fimti maðurinn er erlendis og gat þess vegna ekki verið með. Þau hljóða svo:
„Vér undirritaðir stjórnendur kennarafélags barnaskóla Reykjavíkur, leyfum oss hér með að óska þess, að hið háa Alþingi vildi samþykkja frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 18, 9. júlí 1909 um styrktarsjóð handa barnakennurum, það er nú liggur fyrir þinginu.“
Reykjavík 3. ágúst 1912.
Bjarni Hjaltested. Hallgrímur Jónsson.
Sigurður Jónsson. Guðm. Davíðsson.
Nú býst eg við, að því verði tæplega við borið, að kennarastéttin sé á móti þessum lagabreytingum.