21.08.1912
Efri deild: 31. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í B-deild Alþingistíðinda. (88)

10. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Jósef Björnsson:

Jeg skal fyrst geta þess, að það er prentvilla í brtill. á þgskj. 348. Það stendur, að á eftir 22. lið komi nýr liður svo hljóðandi:

22. Hólmavík, en á að vera 23 — Hólmavík, 22 í stað 23.

Jeg hef flutt þessa brtill. á þgskj. 348 eftir tilmælum háttv. þm. Barðst., sem er sjúkur og tekur því ekki þátt í þingstörfum, eins og háttv. þingdeildarmenn vita. Því miður er jeg ekki eins kunnugur og skyldi því svæði, sem um er að ræða, og get því ekki mælt eins vel með tillögunni og vert væri, og jeg vildi. Það þarf ekki nema að líta á símakortið til að sjá, að Barðastrandasýsla verður mjög hart úti, að því er símann snertir; þessi brtill. á nú að ráða bót á því vandkvæði, og eftir kortinu að dæma verður línan styzt , með því móti að leggja hana yfir þetta svæði, sem nefnt er í brtill. Hugsun þm. Barðst. er sú, að rjettast sje, að leggja hana frá Hólmavík yfir Tröllatunguheiði að Stað á Reykjanesi. Hún liggur þá yfir fjölbygðar og blómlegar sveitir, svo sem Geiradalshrepp og Reykhólasveit. Þess má og geta að lína þessi mun geta orðið eyjunum á Breiðafirði og norðurhluta Dalasýslu að nokkru gagni. Það er því enginn vafi á, að margt mælir með þessari línu. Þörfin á símalínu er augljós og gagn af henni vafalaust mikið, og það má sjálfsagt telja henni fleira til gildis, en jeg er fær um. Það voru aðeins þessi örfáu aðalatriði, er jeg vildi benda á til þess að sýna, að það er sanngjarnt, að þessari línu verði bætt inn í 3. gr. frumv. Í 4. gr er að vísu nefnd lína um Barðastrandarsýslu, en það er ekkert tiltekið um, hvernig hún skuli liggja. Það getur verið, að hugsunin sje, að hún eigi að liggja um aðra staði, en hjer er farið fram á, og heyrt hef jeg Búðardal tilnefndan. Getur verið, að þetta sje að einhverju leyti gott, en það er þó ólíklegt, að hún geti legið hentugar, en þessi lína, sökum viðskifta þeirra, er viðkomandi hjerað hefur við Hólmavík.