26.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í B-deild Alþingistíðinda. (885)
45. mál, tollgeymsla
Ráðherrann (H. H.):
Eg skal játa það, að hér er um sanngjarna beiðni að ræða. En hins er líka að gæta, að landssjóður er illa staddur með peninga nú sem stendur og veitir ekki af þeim tekjum, sem hann með góðu móti getur fengið nú um nýjársleytið næst. Það er vafasamt hvort landssjóðs vegna væri hægt að samþykkja þessa ívilnun, nema trygging væri fyrir því, að hér yrðu samþykt lög, sem ykju tekjur landssjóðs þegar á næsta ári. Eg vil því skjóta því til hv. flutn.m. (G. G.), hvort hann vilji ekki taka frv. út af dagskrá og taka það þá fyrir aftur þegar full líkindi eru orðin fyrir því, að þingið samþykki lög, sem væntanlega mundu leiða til tekjuauka fyrir landssjóð þegar á þessu eða næsta ári.