26.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í B-deild Alþingistíðinda. (887)

45. mál, tollgeymsla

Kristján Jónsson:

Þingm. mun reka minni til að fyrir síðasta þingi lá frv. til laga um tveggja ára tollgeymslufrest. Því var breytt þannig að fresturinn var settur að eins eitt ár, og á eftir því allur áfengistollur að greiðast innan loka þessa árs. Nú vildi eg skýra frá því að vegna peningaþurðar í landssjóði hefir landsstjórnin orðið að nota heimild þá til að taka víxillán fyrir landssjóð, er veitt var með lögum á síðasta þingi; víxillánið heflr verið fengið í Íslandsbanka og er að upphæð nú 200 þús. kr. Þegar víxillán þetta var tekið, var það haft fyrir augum, að endurborga það með fé því er fengist inn, sem áfengistollur um næstu árslok.

Eftir reikningi flutningsmanns sjálfs um tollgeymsluvörur, er ástæða til að ætla, að um árslok næstu eigi að greiða toll af vörum sem í tollgeymslu eru til þess tíma, um 200 þús. kr. Þetta fé kemur í mjög góðar þarfir til að borga víxillánið, sem fyrv. stjórn varð að taka.

Fyrst eg mintist á þessa skuld, þá vil eg um leið benda á að hún er alls ekki neitt hræðileg. Í fyrra á útmánuðum skuldaði landssjóður ríkisféhirzlunni dönsku sem næst 500 þús. kr. Þessi skuld var borguð upp rétt á eftir, og síðan hefir landssjóður eigi skuldað ríkissjóði Danmerkur svo teljandi sé. Eg get jafnvel hugsað að við eigum lítilsháttar til góða nú þar ytra. Eg bæti þessu við til upplýsingar, svo að þingmenn láti sér eigi blöskra þennan umrædda víxil. Hann er eiginlega ekki ný skuld, heldur var hann tekinn til að flytja skuld hingað frá Höfn. En eg tel, vegna hans, vafasamt, að rétt sé að veita frekari tollgeymslufrest, en heimilaður er að lögum.