27.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í B-deild Alþingistíðinda. (904)
47. mál, kosning sýslunefnda
Flutningsm. (Stefán Stefánsson):
Frv. þetta hefir inni að halda nýmæli, og get eg því búist við, að ekki verði allir á eitt sáttir um það, hver nauðsyn er á því. En hvað sem um það verður sagt, hvort nauðsynin á lögum um þetta efni, nú þegar, sé svo knýjandi, þá hygg eg að mál þetta sé fullkomlega þess vert að koma hér til umræðu og athugunar.
Það er ljóst, að störf sýslunefnda vaxa ár frá ári og að sama skapi vex vandinn og ábyrgðin, og þá eðlilega áhugi kjósenda á því, hver skipi sæti í nefndinni. Út af þessu má búast við og hefir jafn vel þegar bólað á flokkadráttum og agitationum. Eins og valdi sýslunefnda nú er komið, þar sem þær geta aukið gjöldum á sýslubúa eiginlega mjög takmarkalítið, þá er það ofur eðlilegt að allmikið kapp verði eða geti orðið um þessar kosningar, sem þá leiði til þess, að hindra að nokkru algerlega frjálsa atkvæðagreiðslu.
Eg minnist þess, af því að það er svo náskylt þessu máli, hve eindregið fylgi alþingiskosningalögin fengu þegar það frv. var til umræðu, á árunum 1901—2 að mig minnir og varð þá enginn til að andmæla þeirri gagngerðu breytingu enda var það sannarlega stór réttarbót. sama er að segja um lögin um kosningar til bæjarstjórna, og hví ættu ekki kosningar til sýslunefnda að fylgja sama principi og þær kosningar, þar sem öll starfsemi og afstaða þessara nefnda er hin sama.
Eg sé ekki ástæðu til að fara út í nein einstök atriði málsins við þessa umræðu en leyfi mér að stinga upp á 3 manna nefnd í málið, að umræðunni lokinni.