27.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í B-deild Alþingistíðinda. (905)
47. mál, kosning sýslunefnda
Einar Jónsson:
Eg skal ekki lengja umræður. En eg get ekki orða bundist yfir bunka þýðingarlausra frv. sem streyma inn á þetta þing, og er þetta eitt í þeirra tölu. Eg kalla það að gera lítið úr kjósendum að koma með þannig lagað frv., þar sem um ekki vandasamara verk er að ræða en þetta, kosning til sýslunefnda. Það mætti næstum halda, að það sé einungis fram komið í því skyni, eins og segja má um fleiri frv., sem hér hafa fram komið, að nöfn flutningsmanna sjáist á sem flestum þingskjölum. Eg mun því als ekki styðja þetta með mínu atkv., álít réttara fyrir háttv. þingdeild að vinna að öðrum þarfari málum og drepa þetta nú þegar.