27.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (908)

49. mál, sala eggja eftir þyngd

Flutningsm. (Jón Ólafsson):

Herra forseti! Það er fátt um þetta frv. að segja, nema að það fer fram á, að egg skuli héðan af seld eftir þyngd en eigi tölu eins og tíðkast hefir hingað til. Það er réttlátt, bæði að því er snertir kaupanda og seljanda. Það er auk þess holt og gott, því að það mun hafa það í för með sér, að menn leggja meiri stund á að bæta hænsakyn sitt, að ala fremur upp hæns, sem verpa stórum eggjum.

Eg vona að frv. komist mótmælalítið gegnum þingið.