09.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í B-deild Alþingistíðinda. (938)

51. mál, íslenskt peningalotterí

Framsögum. meiri hl. (Lárus H. Bjarnason):

Háttv. framsögum. minni hl., þm. Dal. (B J.) er óþarfi að svara. Hann er nú farinn að yrkja sig upp og það er margbúið að hrekja það alt, sem hann hefir sagt. Þessar brtill. hans eru að eins veiðibrella til að reyna að fella frv.

Hæstv. ráðh. (H. H.) vill láta líta svo út, sem þetta sé spor í sömu áttina sem farið var í kolamálinu, og skal eg ekki lá honum það, eins aðþrengdur og hann er í einokunartillögum sínum. En hann hlýtur að sjá, að það er sitt hvað, einkaréttur á svona löguðu fyrirtæki og einokun á almennri nauðsynjavöru. En eg ann honum ósköp vel að lýsa þessum fögnuði sínum.

Annars er nefndin honum þakklát fyrir undirtektir hans undir þetta mál og vonar að það takist með hans mikilsverðu hjálp, að fleyta frv. til efri deildar, þrátt fyrir allar tilraunir minni hl. til að fella það.