29.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (946)
52. mál, Grundarkirkja
Guðlaugur Guðmundsson:
Eg vildi taka í sama strenginn og háttv. flutningsm. þessa frv. (St. St). Eg álít full rök til að verða við tilmælum þessa manns, og það því fremur sem engin hætta er á, að fleiri menn á landinu vilji gera eða muni gera eins mikið fyrir sína kirkju eins og hann. (Jón Ólafsson: Ásgeir gamli á Þingeyrum gerði meira). Og þótt svo færi, að einhver annar ynni kirkju sinni svipað afrek, sé eg ekkert á móti því að hann fengi einhverja viðurkenningu fyrir, á líkan hátt.
Til eru þeir menn, sem telja það vafasamt hvort þetta prestmötugjald, sem stendur eftir frá gamalli tíð, ætti ekki að falla niður samkvæmt hinum nýju lögum um laun presta. Dómar um þetta eru ekki til, en vel getur svo farið að það verði innan skamms gert að dómstólamáli.
Eigandi Grundarkirkju fer ekki fram á að fá endurgreidda vexti eða höfuðstól, heldur að eins að létt verði undir með sér með viðhald kirkjunnar, og eg býst alls ekki við að leitað verði hjálpar landssjóðs til að endurreisa kirkjuna þegar hún fellur. Full sanngirni mælir með að við þessum tilmælum sé orðið, enda hefir kirkjustjórnin mælt eindregið með því. Eg vil því leyfa mér að mælast til að frv. verði samþykt eins og það liggur fyrir.
Eg skal líka geta þess, að kirkjan á Grund er einhver veglegasta timburkirkjan á landinu, og væri illa farið, ef þyrfti að leggja hana niður frá guðsþjónustugerð og gera hana að pakkhúsi. Maðurinn sem hér á í hlut þarf nú að byggja sér pakkhús. Auðvitað getur hann gert kirkjuna að pakkhúsi og bygt svo þess í stað einhvern pakkhúshjall og gert hann að kirkju í stað hinnar, en það mundu flestir telja illa farið.
Eg verð að álíta það mjög skaðlegt ef þetta frv. yrði ekki samþykt, og tel það geta orðið að talsverðu slysi fyrir kirkjumálin í þessu héraði.