31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (952)
52. mál, Grundarkirkja
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Eg talaði á móti þessu máli við 1. umr., og þóttist hafa til þess góð og gild rök, og það gleður mig, að hv. þm. Vestm. (J. M.) er mér samdóma. Það er spurning mín til háttv. flutningsm., bæði nú og í fyrra, hvers vegna eigi að vera að fara þessa krókaleið, fyrst í prestlaunasjóð og svo í landssjóð. Því ekki að fara beint í landssjóð og biðja um þessa gjöf handa manninum, því að það er rétt hjá hv. þm. Vestm. (J. M.), að þetta er gjöf og ekkert annað. Eg skal líka geta þess, að þótt kirkjan sé vegleg og góður maður eigi í hlut, þá eru þó verk eins og það sem hann hefir gert engin einsdæmi.
Ásgeir heitinn á Þingeyrum reisti kirkju, sem víst var bæði dýrara og örðugra verk, en þessi, og bað aldrei um einn eyri til endurgjalds fyrir það.